Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

Strákar eru og verða strákar

2019-06-18T11:06:08+00:005. apríl 2013|

Ef einhver heldur að það sé leiðinlegt að vinna á skrifstofu – með lágum skilrúmum sem leyna ekki neinu og yfirmanni sem situr á palli og sér yfir allt svæðið – skyldi sá hinn sami fara á verðlaunasýningu Akureyringsins Kristjáns Ingimarssonar, BLAM!, á stóra sviði Borgarleikhússins. Þar má sjá hvernig hversdagslegt skrifstofudót getur á undrastuttri [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]

Ástir og örlög Borgfirðinga

2019-06-18T12:18:09+00:009. febrúar 2013|

Eiginlega er merkilegt hvað maður man vel eftir leiksýningunni Ormstungu frá því fyrir rúmum sextán árum – miðað við hvað maður hefur gleymt ótalmörgu sem hefur gerst síðan. En þessi ferska nálgun á Íslendingasögurnar, það heilagasta af öllu heilögu, var svo óvænt og svo rosalega fyndin og skemmtileg að sýningin hefur verið eins og grafin [...]

Fangar hrunsins

2019-06-18T12:24:55+00:002. febrúar 2013|

Í leikritinu Nóttin nærist á deginum sem var frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi notar höfundurinn, Jón Atli Jónasson, tvö ágeng fréttaefni frá síðustu árum og fléttar þau saman. Þetta eru annars vegar hrunið sem hefur skilið hjónin í verkinu eftir á eins konar eyðiey, í hálfkláruðu húsi í hverfi sem aldrei var byggt, [...]

Tilraun um tímann

2019-06-18T12:45:08+00:0011. janúar 2013|

Eftir Ágústínusi kirkjuföður er haft að hann viti hvað tíminn sé ef hann sé ekki spurður. En ef einhver spyrji kunni hann ekkert svar. Með þetta óræða eðli tímans var unnið í stundarlöngu vísindalegu dansleikverki Leifs Þórs Þorvaldssonar, Stundarbroti, á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þar stigu fjórar stúlkur, Védís Kjartansdóttir, Þyrí Huld Árnadóttir, Kara [...]

Að gæta bróður síns

2019-06-18T17:31:31+00:0030. desember 2012|

Þær voru ólíkar eins og stundum áður jólasýningar stóru leikhúsanna í Reykjavík. Í Macbeth Þjóðleikhússins var stílfærsla í algleymingi með tilfærslu í tíma og allt; í Músum og mönnum Leikfélags Reykjavíkur á stóra sviði Borgarleikhússins ríkir hefðbundið raunsæi, svo rækilega útfært að jaðrar við ofurraunsæi. En mig langar til að segja það strax að eftirbragðið [...]

Allt til bóta

2023-09-14T18:36:11+00:002. nóvember 2012|

Fyrsta sviðsverk Ragnars Bragasonar, Gullregn, ber þess merki að höfundurinn er vanur að vinna fyrir kvikmyndavélar. Verkið er samsett úr þrettán atriðum sem gerast með mislöngu millibili, það líða allt frá tíu mínútum að fjórum mánuðum á milli og þá er sviðið myrkvað – þar sem Ragnar hefði klippt í kvikmynd. Þetta verður svolítið gamaldags [...]

Karamazov-fjölskylda á 21. öld

2019-06-19T11:08:48+00:0031. október 2012|

Það kemur fram í viðtali við Richard LaGravanese, annan höfund Bastarða sem nú eru sýndir í Borgarleikhúsinu, að innblásturinn hafi þeir Gísli Örn Garðarsson fengið úr skáldsögu Dostojevskís, Karamazov-bræðrunum. Þaðan spretta persónur verksins og litríkur textinn er undir áhrifum þaðan. Vissulega eru Bastarðar einfalt verk miðað við geysilanga og flókna skáldsöguna en írónían er lúmskari [...]

Rauðir kassar

2019-06-19T11:40:05+00:0023. september 2012|

Annar tvíleikur í kvöld, eins ólíkur þeim í gær og hugsast getur: Átök tveggja manna sem byrja sem léttar skylmingar, skýrast, harðna, verða að uppgjöri um lífssýn og stefnu og leysast svo upp. Þetta er leikritið Rautt eftir John Logan sem Guðrún Vilmundardóttir þýðir og Kristín Jóhannesdóttir stýrir á litla sviði Borgarleikhússins. Verulega áhugavert leikverk [...]

Skyldi hann koma í kvöld?

2019-06-19T12:26:27+00:0014. maí 2012|

Það er vel hægt að dást að fólki sem fer sjálfviljugt að sjá þriggja tíma leikrit um tvo iðjuleysingja sem bíða eftir manni sem kemur aldrei og masa saman á meðan um svo sem ekki neitt – skó sem meiða, hvort þeir séu á réttum stað og réttum tíma … En það var fullt hús [...]