Þú ert hér://Tag: Björn Thors

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]

Saga um háar hugsjónir, ást – og svik

2019-08-08T15:18:19+00:0024. apríl 2010|

Best að segja það strax: Sýning Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness er vel heppnuð. Um margt ólík öllum þeim sex uppsetningum sem ég hef séð áður á verkinu, um margt hugmyndaríkari, beinskeyttari, pólitískari, efnismeiri jafnvel, bæði af því að sýningin er löng og svo er svið Finns Arnars Arnarsonar svo haglega gert að enginn [...]

Saga af görpum

2019-08-08T14:56:17+00:0013. febrúar 2010|

Gerpla Halldórs Laxness, saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Bessasonar Kolbrúnarskálds, er glæsilegt verk sem hefur margt til að laða að sér breiðan hóp lesenda: mikla atburðarás og lifandi lýsingar á stórum og smáum viðburðum, spennu og ofbeldi, óleyfileg erótísk sambönd, einlæga vináttu og heitar ástir. Hún hefur fornlegan stíl, er fyndin og hefur djúpan [...]

Völvan og Brennuvargarnir

2020-01-31T14:56:29+00:0024. október 2009|

Það var í óvænt gjöf að fá að sjá kvöld eftir kvöld nýjustu sýningar Þjóðleikhússins, einleikinn Völvu sem sýndur er í Kassanum og Brennuvargana eftir Max Frisch sem spóka sig á stóra sviðinu. Báðar eru sýningarnar vandaðar, einstaklega fallegar – og áhrifamiklar. Völva byggir á sjálfri Völuspá, eldfornu kvæði sem allir íslenskir framhaldsskólanemar kynnast enn [...]

Hungur og gredda

2020-01-31T16:10:28+00:0031. janúar 2009|

Það greip mig óvænt tilfinning að lokinni sýningu á Rústað eftir Söruh Kane á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi: ég fann að ég var þakklát. Fyrir hvað? hugsaði ég hissa. Fyrir að horfa á manneskjur gera öðrum manneskjum mein? Nei, öllu heldur fyrir að sýna mér bakhliðina á fréttunum sem við lesum og heyrum á hverjum degi, [...]

Írsk óhamingja

2019-04-03T14:58:51+00:008. nóvember 2008|

Ég man ekki hvort ég las það eða heyrði einhvern segja að í nýju sýningunni í Borgarleikhúsinu á írska leikritinu Vestrinu eina sæjum við hvað væri hægt að sökkva djúpt, og við gætum ekki kvartað fyrr en við værum farin að pissa í fötu og hætt að borða mat. Víst er að Martin McDonagh hlífir [...]