Þú ert hér://Tag: Björn Ingi Hilmarsson

Tveggja mála fjölskyldudrama

2022-11-11T21:25:45+00:0011. nóvember 2022|

Á Íslandi eru tvö opinber tungumál en annað þeirra, íslenska táknmálið, sést ekki oft í stóru leikhúsum landsins. Það gerðist þó á frumsýningu leikritsins Eyju eftir Ástbjörgu Rut Jónsdóttur og Sóleyju Ómarsdóttur á litla sviði Þjóðleikhússins á fimmtudaginn í leikstjórn Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. Að sýningunni stendur O.N., sviðslistahópur sem samanstendur af döff og heyrandi listafólki, [...]

Ævintýri í flundarlegum kafbát

2021-03-25T10:12:23+00:0021. mars 2021|

Barnasýningin Kafbátur eftir Gunnar Eiríksson sem var frumsýnd í Kúlu Þjóðleikhússins í gær (ég sá aðra sýningu sem var í dag) er listaverk hvar sem á hana er litið. Sagan er fjörug með fallegum boðskap, þýðing Bergsveins Birgissonar einkar liðleg, leikurinn góður og sviðið hans Finns Arnars Arnarsonar geggjað snilldarverk! Þetta er dystópía eins og [...]

Ævintýri Djöfulsins í Moskvu

2019-12-27T16:36:07+00:0027. desember 2019|

Rithöfundar eru öfundsverðir, sérstaklega skáldsagnahöfundar. Þeir geta búið til nýjan veruleika og haft hann algerlega eins og þeim sýnist, látið hvað sem er gerast og notið þess. Þetta nýtti rússneska sagnaskáldið Mikhaíl Búlgakov sér rækilega í Meistaranum og Margarítu, en leikgerð Niklas Rådström af þeirri sögu var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir [...]

Ys og þys út af ástinni

2019-10-11T13:50:02+00:0011. október 2019|

Vegir hugverkanna eru margir og margvíslegir. Oftast fara þó skáldsögur upp á svið eða í bíó en líka kemur fyrir að bíómyndir fara upp (eða niður) á leiksvið. Shakespeare verður ástfanginn byrjaði með handriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard í kvikmynd sem naut mikilla vinsælda og hlaut ótal verðlaun og viðurkenningar. Þessa bíómynd lagaði [...]

Bestuvinaafmæli Odds og Sigga

2019-05-27T11:23:15+00:005. mars 2018|

Ég sá í morgun leikarana og fjörkálfana Odd Júlíusson og Sigurð Þór Óskarsson halda upp á tíu ára vináttuafmæli sitt á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir fullan sal af líklega tíu ára börnum. Verkið sömdu þeir bestu vinir ásamt leikstjóra sínum, Birni Inga Hilmarssyni, og hafa verið að sýna víða um land síðan snemma í haust. [...]

Mitt, þitt og okkar

2019-05-27T11:22:23+00:007. janúar 2018|

Í Kúlu Þjóðleikhússins var í dag frumsýnt leikverkið Ég get eftir Peter Engkvist, góðkunnan sænskan leikhúsmann, leikskáld, leikstjóra og leikhússtjóra, sem hefur áður glatt okkur hér á landi á ýmsan hátt gegnum tíðina. Björn Ingi Hilmarsson leikstýrir þeim Stefáni Halli Stefánssyni og Maríu Thelmu Smáradóttur sem fá að leika sér í anda tveggja til fimm [...]

Margur er knár

2019-05-03T16:16:34+00:0020. nóvember 2016|

Oddur Júlíusson er loksins kominn til höfuðborgarinnar eftir langan túr um landið með barnaleikritið Lofthrædda örninn Örvar. Honum var tekið fagnandi í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í gær enda er þetta bráðskemmtilegt stykki. Verkið er sagt eftir þá Klinting, Ahrreman og Engkvist og ekki skilgreint nánar hvað hver þeirra á en upprunalega sagan mun vera eftir [...]

Leiklistin í haust

2020-01-31T16:04:50+00:0017. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008   Fyrsta frumsýning vetrarins var í barnaleikhúsinu Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á Klókur ertu, Einar Áskell, sem brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik samdi og setti upp í samstarfi við höfund þessara vinsælu bóka, Gunillu Bergström (hún valdi Bernd sjálf til verksins) og leikstjórann Kristján Ingimarsson. Þetta var klassískt brúðuleikhús [...]