Þú ert hér://Tag: Björk Jakobsdóttir

Matarlist í Hafnarfirði

2019-05-20T16:45:49+00:001. mars 2015|

Gaflaraleikhúsið heldur uppi heiðri grínsins þessi misserin og ekki er hann slakur farsinn sem Gunnar Helgason og Felix Bergsson hafa kokkað saman og kalla Bakaraofninn. Ég er með svo miklar harðsperrur í kjálkunum eftir hlátursköstin að ég get ekki ennþá talað með góðu móti. Gott að geta látið nægja að skrifa. Þeir fengu sem sagt [...]

„Þú ert aldrei nógu góð“

2019-05-22T11:42:01+00:0031. janúar 2015|

Það er alveg einstök lífsreynsla – sem við höfum nú átt þrisvar sinnum – að sitja í troðfullum tvöhundruð manna sal með unglingum og ungmennum og hlæja og gráta með þeim að frumsömdum leikverkum jafnaldra þeirra á sviðinu. Í gærkvöldi sáum við nýjasta afreksverkið í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði, Konubörn, sem sex dásamlegar rétt rúmlega tvítugar [...]

Id, ego, superego

2019-05-22T13:42:59+00:008. nóvember 2014|

Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði er að gera skemmtilega tilraun með sérstakri Ungmennadeild við húsið. Hygg ég að einhverju hafi ráðið um þá ákvörðun hvað Unglingurinn þeirra Arnórs Björnssonar og Óla Gunnars Gunnarssonar gekk vel í fyrra. Höfundarnir voru þá 14 og 15 ára. Í fyrstu sýningu hinnar nýju deildar, Heili, hjarta, typpi, eru það litlu eldri [...]

Ó, þér unglingafjöld …

2019-06-12T13:32:36+00:0028. október 2013|

Þeir eru snillingar, unglingsdrengirnir tveir sem sýna nú sína eigin ritsmíð, leikverkið Unglinginn, í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Arnór Björnsson er 15 ára og Óli Gunnar Gunnarsson 14 svo þeir vita nákvæmlega hvað þeir eru að tala um þegar þeir lýsa lífi unglingsins bæði þversum og langsum. Svo er það móðir annars unglingsins, leikkonan Björk Jakobsdóttir, [...]

Vogur vinnur, vínið tapar

2019-06-19T11:09:04+00:0020. október 2012|

Það skemmtilegasta við að blogga um leikhús er hvað maður fær að sjá fjölbreytta flóru. Uppgötva hvað fólk getur verið að fást við ótrúlega ólíka hluti eiginlega á sömu þúfunni. Kvöldið eftir há-fagurfræðilega upplifun í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu fylgdumst við hjónin með meinfyndinni og dónalegri konu á fimmtugsaldri frá Hafnarfirði upplifa tráma lífs síns og [...]

Karlar á tilvistarkrepputíð

2019-08-23T15:01:08+00:0025. september 2011|

Hellisbúinn, Pabbinn, Afinn og nú Alvörumenn, allt eru þetta uppistandssýningar með áherslu á hlutverk og stöðu karlmannsins í nútímasamfélagi. Af þeim er sú síðastnefnda stærst í merkingunni fjölmennust og sviðsett af mestum metnaði í stærsta salnum, en hún er samt beint framhald af Hellisbúanum sem var fyrsta viðureignin við þetta efni á íslensku og að [...]