Þú ert hér://Tag: Bjartmar Þórðarson

„Kærleikur er leikur þar sem allir taka þátt“

2024-10-17T12:51:46+00:0016. október 2024|

Ég hafði aldrei heyrt um Sviðslistakórinn Viðlag fyrr en í gær þegar ég sá sýningu hans Við erum hér í Tjarnarbíó – ef ég hefði heyrt um hann fyrr hefði ég sótt um inngöngu. Þetta er alveg áreiðanlega hressasti hópurinn á svæðinu um þessar mundir, minnir oft á leikhópinn Hugleik á hans fjölmennustu og fjörugustu [...]

Þyngsta refsingin

2019-05-08T15:44:58+00:001. apríl 2016|

Leikhópurinn Artik frumsýndi nýtt íslenskt verk í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Það heitir Djúp spor og er eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur og Jóel Sæmundsson en Bjartmar Þórðarson leikstýrir. Nafnið á einkar vel við. Verkið snýst um einn atburð, eina örlagastund, sem hefur óafmáanleg áhrif á allt líf allra viðkomandi upp frá því: Atburðurinn markar sem sagt [...]

Hin nýja búfjárrækt Íslendinga

2019-05-08T16:47:46+00:0027. febrúar 2016|

Bjartmar Þórðarson leikari og leikstjóri frumsýndi nýtt leikrit í Tjarnarbíó í gær ásamt leikhópnum Þurfandi: svörtu kómedíuna Gripahúsið sem hann leikstýrir sjálfur. Þetta er fyrsta verk hans í atvinnuleikhúsi og lofar nokkuð góðu. Stíllinn rambar á barmi fáránleikans en þegar undir er meinleg árás á lífshætti Íslendinga á það vel við. Samtölin eru ágætlega skrifuð [...]

Hundalíf

2019-06-18T11:25:19+00:0020. mars 2013|

Það er dáldið æðislegt sem leikhópurinn Fullt hús hefur gert við Þjóðleikhúskjallarann fyrir sýningu sína Hundalógík. Þau leika á miðju dansgólfinu og raða stólum allan hringinn í kringum sig. Þau hafa ekki pláss fyrir voðalega marga áhorfendur með þessari uppsetningu enda spila þau algerlega upp á nándina og hún verður þeirra styrkur þó að þau [...]

Saga úr kreppunni

2019-08-08T16:06:31+00:0025. mars 2012|

Fátæka leikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur frekar en venjulega heldur setur nú upp nýja þýðingu á tæplega sjötíu ára leikriti Tennessee Williams, Glerdýrunum, í Þjóðleikhúskjallaranum. Þýðandi og leikstjóri er Heiðar Sumarliðason. Leikritið gerist í kreppunni miklu á fjórða áratugnum og segir frá einstæðri móður með tvö uppkomin börn. Verkið er [...]

Að gæta bróður síns

2020-01-24T16:24:24+00:002. maí 2010|

Það var virkilega gaman að koma í Norðurpólinn, nýja leikhúsið á Seltjarnarnesi í gær. Alltaf er gaman þegar leiklistin fær nýjan vettvang og ekki dregur úr ánægjunni þegar hann er eins aðlaðandi og Norðurpóllinn: Geysistór forsalur með bar, mjúkum sófum og gömlum Sunnudagsblöðum Tímans (!) til að kíkja í meðan beðið er sýningar, tveir miðlungsstórir [...]