Þú ert hér://Tag: Bjarni Thor Kristinsson

Brúðkaup á vínekrunni

2025-02-04T16:30:12+00:003. febrúar 2025|

Kammeróperan frumsýndi í gær á Nýja sviði Borgarleikhússins Brúðkaup Fígarós eftir W.A. Mozart. Texta Da Ponte þýddi Bjarni Thor Kristinsson og aðlagaði stórskemmtilega auk þess sem hann leikstýrir uppfærslunni. Tíu manna hljómsveit er bakatil á sviðinu og tónlistarstjóri er Elena Postumi. Leikmyndina hannaði Eva Björg Harðardóttir, Andri Unnarson sá um búninga en lýsingin var í [...]

Hans og Gréta enn í vanda stödd

2023-12-12T14:11:57+00:0010. desember 2023|

Barnaóperan Hans og Gréta eftir þýska tónskáldið Engelbert Humperdinck og Adelheid Wette, sem var frumsýnd í Þýskalandi 1893 (undir stjórn Richards Strauss), er nú sett upp í þriðja sinn á íslensku, að þessu sinni á vegum Kammeróperunnar í skemmtilegri nýrri þýðingu Bjarna Thors Kristinssonar. Sýningin er í Tjarnarbíó, það er Guðmundur Felixson sem leikstýrir en [...]

Ekkert heilagt

2022-09-30T14:17:44+00:004. september 2022|

Ég hef lengi vitað að þeir sem stunda þá atvinnu að gagnrýna það sem aðrir gera eru almennt álitnir asnar, einkum af þeim sem gagnrýndir eru. En ég vissi ekki fyrr en í gær að fyrstu gagnrýnendurnir í veraldarsögunni hefðu beinlínis verið hirðfífl valdhafanna – sem sé haft atvinnu af hvoru tveggja, að gagnrýna og [...]

Ég á gull að gjalda – en gráta ekki má

2022-09-30T14:24:07+00:002. september 2022|

Ævintýraóperan Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur – bæði texti og tónlist – var frumsýnd í Gamla bíói í gærkvöldi. Ég hef áður séð nokkrar gamanóperur Þórunnar, byggðar á þjóðararfinum, og þær hafa allar verið eftirminnilega skemmtilegar, textinn vel ortur og fyndinn og tónlistin vel samin og aðlaðandi í klassískum og þjóðlegum stíl án þess kannski að [...]

Skuldadagar

2022-09-30T14:25:08+00:0020. ágúst 2022|

Það er býsna djarft að skíra óperu eftir þögninni, fátt virðist óskyldara en þær tvær. En þetta gera Árni Kristjánsson handritshöfundur og Helgi Rafn Ingvarsson tónskáld því ný ópera þeirra, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn höfundanna og á vegum sviðslistahópsins Hófstillt og ástríðufullt, heitir einfaldlega Þögnin. Það er ekki bókstafleg þögn [...]

Rakarinn leysir vandann

2019-05-16T12:15:09+00:0018. október 2015|

Uppsetning Ágústu Skúladóttur á Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini í Íslensku óperunni er ljómandi vel heppnuð, bæði falleg og skemmtileg. Ágústa segir sjálf í leikskrá að hún líti á söguna sem ævintýri og í stíl við ævintýrið er sýningin stílhrein og tær. Ekkert fer á milli mála. Litirnir í leikmynd Steffens Aarfing eru heitir, litsterkir [...]

Tálkvendið og hermaðurinn

2019-06-12T14:20:17+00:0020. október 2013|

Önnur gamalkunn saga var frumsýnd í óperuformi í Eldborg Hörpu í gærkvöldi, Carmen eftir Georges Bizet sem frumflutt var í París 1875 – við lítinn fögnuð almennra áheyrenda, skilst mér. Fólki fannst ástæðulaust að setja svona pakk á svið – verkalýð, portkonur og hermenn. Síðan hefur þetta orðið ein allra vinsælasta ópera í heimi og [...]

Ljúffengur Ástardrykkur

2020-01-31T14:33:40+00:0026. október 2009|

Það var ótrúlega gaman að hlýða á Ástardrykkinn eftir Donizetti í Íslensku óperunni í gærkvöldi. Félagi minn á frumsýningunni hafði séð uppsetningu á verkinu í sjálfri Vínaróperunni fyrir fáum árum og hann fullyrti að söngurinn væri alveg eins góður hér og þar. Það kom mér ekki á óvart. Hér er valinn maður í hverju einsöngshlutverki: [...]