Þú ert hér://Tag: Bjarni Jónsson

Allt – eða ekkert

2023-02-08T16:07:53+00:0029. janúar 2023|

Í gærkvöldi var frumsýndur miðleikur þríleiks Mariusar von Mayenburg á stóra sviði Þjóðleikhússins: Ex. Aðstandendur eru hinir sömu, þýðandi Bjarni Jónsson, leikstjóri Benedict Andrews og leikið er á sama sviði Ninu Wetzel en því þó líka breytt á ýmsa vegu. Björn Bergsteinn Guðmundsson stýrir vandaðri lýsingu og einstaklega viðeigandi áhrifstónlistin er eftir Gísla Galdur Þorgeirsson. [...]

Þriðji stóllinn

2021-09-24T14:41:29+00:0024. september 2021|

Þjóðleikhúsið býður nú upp á hádegisleikhús í Þjóðleikhúskjallaranum, nýbreytni sem ber að fagna. Fyrsta verkið á dagskrá er Út að borða með Ester eftir Bjarna Jónsson, hálftímalangt stykki sem gerist á veitingahúsi þannig að við áhorfendur erum eðlilegt umhverfi leikaranna. Boðið er upp á súpu og brauð sem hvort tveggja var vel útilátið á sýningunni [...]

Á svölunum hjá Angelu Merkel

2021-09-14T09:41:25+00:0014. september 2021|

eftir Kristof Magnusson Bjarni Jónsson þýddi Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2016 Rithöfundum er ansi oft boðið út að borða. Hefðbundinn upplestur í dæmigerðri þýskri borg hefst klukkan 20 og lýkur klukkan 21, þá hefur maður um það bil hálftíma til þess að árita bækur, spjalla við fólkið, en verður svo að hraða [...]

En þeirra er kærleikurinn mestur

2019-03-18T10:49:26+00:0012. janúar 2018|

Ég hélt að það væri ekki hægt. Nei: Ég var viss um að það væri ekki hægt að færa þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar um nafnlausa vestfirska strákinn upp á svið. Vantrú minni var gerð skömm til á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi á frumsýningu Himnaríkis og helvítis í leikgerð Bjarna Jónssonar og undir hugmyndaríkri og [...]

Lífið er línurit

2019-05-03T16:30:19+00:0013. nóvember 2016|

Það er rosalega gaman að horfa og hlusta á strákana í leikhópnum Kriðpleir (eða á maður að segja Kriðplei í þágufalli?) en það er meiri vandi að taka á verkum þeirra og skrifa um þau; einhvern veginn renna þau milli fingra … Kriðpleir frumsýndi nýtt verk, Ævisögu einhvers, í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Það er dálítil [...]

Margt býr í skápunum

2019-05-06T17:09:13+00:0016. september 2016|

Fyrsta tilfinningin sem grípur mann á Sendingu, leikriti Bjarna Jónssonar sem Marta Nordal setur upp á Nýja sviði Borgarleikhússins, er að það sé þrengt að því. Sviðið virkar svo lítið. Og eintóna. Gólf og þrír veggir sem eru samfelldar hurðir á skápum og öðrum herbergjum. En séu hurðir þá er eitthvað fyrir innan þær og [...]

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst [...]