Þú ert hér://Tag: Auður Ava Ólafsdóttir

Fram og aftur frá degi núll

2022-03-01T15:56:29+00:0025. febrúar 2022|

Gísli Örn Garðarsson hljóp sig nánast sleitulaust í gegnum frumsýninguna á Ég hleyp á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þó tók sýningin eina og hálfa klukkustund og allan tímann talaði hann við okkur. Hvað getur maður sagt? Þrekvirki? Eldraun? Undur? Leiktextann samdi Line Mørkeby upp úr samnefndri bók Anders Legarth Schmidt, blaðamanns á Politiken, en [...]

Ljósmóðir í Vesturbænum

2021-05-12T22:36:11+00:0012. maí 2021|

Auður Ava Ólafsdóttir. Dýralíf. Benedikt bókaútgáfa, 2020. 205 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2021.   Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng. (Matthías Jochumsson)   Það er óneitanlega ættarsvipur með aðalpersónunum í skáldsögum Auðar Övu Ólafsdóttur. Þær eru verulega færar á sínu sviði, ef [...]

Raunverulegt myrkur og ímyndað ljós

2019-10-16T16:35:03+00:0016. október 2019|

Um Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur* Eftir Xinyu Zhang Úr Tímarit Máls og menningar 3. hefti 2019 Hátíðarfyrirlestur Hugvísindaþings í hátíðarsal Aðalbyggingar. Frægur bandarískur fræðimaður var að tala um Shakespeare og samtímann. Í miðjum fyrirlestri skimaði ég í kringum mig og sá að ég var sá eini í salnum sem ekki var hvítur.   I. [...]

Hvað er að vera faðir?

2019-09-24T13:40:14+00:0020. september 2019|

Það er erfitt að fara ekki af stað með miklar væntingar þegar Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit sem ber sama nafn og skáldsaga eftir margverðlaunaðan rithöfund sem hefur gert garðinn frægan víða um lönd. Leikritið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) eftir Auði Övu Ólafsdóttur er að vísu ekki leikgerð verðlaunaskáldsögunnar með þessu heiti enda [...]

„Kvenskáld verður til og berst svo fyrir tilverurétti sínum“

2019-05-16T11:47:09+00:0019. febrúar 2019|

Auður Ava Ólafsdóttir: Ungfrú Ísland. Benedikt 2018. 240 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Auður Ava Ólafsdóttir er á mikilli sigurgöngu þessa dagana. Síðan nýjasta skáldsaga hennar Ungfrú Ísland kom út í nóvember síðastliðnum, hafa gagnrýnendur og aðrir lesendur keppst við að lofa verkið, sem þar að auki hlaut tilnefningu til Íslensku [...]

Fimm áttavilltar sálir með biskví í boxi

2019-03-15T10:01:59+00:0013. apríl 2018|

Mæðgurnar Auður Ava Ólafsdóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir leggja saman krafta sína í poppóperunni Vakúm sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi á opnun hátíðarinnar Vorblóts þar á bæ. Hugmyndin er Melkorku og útfærslan hennar og leikhópsins undir leiðsögn eða eftirliti Dóra DNA. Textinn er Auðar Övu en tónlistin er eftir Árna Rúnar Hlöðversson. Magnús [...]

Sjálfsblekkingarleikur

2019-05-22T11:50:02+00:0016. janúar 2015|

Það var hressandi að horfa á Háaloftskonur á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þær léku þar, sungu og dönsuðu nýtt leikverk eftir Auði Övu Ólafsdóttur, Ekki hætta að anda. Stefán Jónsson leikstýrði þeim og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir samdi dansana sem brutu upp framvinduna á afar þokkafullan hátt. Þessi sýning er eins ólík öðrum uppsetningum leikhúsanna [...]

„Hvað binzt við nafn?“

2019-06-14T13:24:54+00:001. apríl 2014|

Auður Ava Ólafsdóttir. Undantekningin: De arte poetica. Bjartur, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2014 I Meginvandi skáldskaparins er sá að hann reynir að lýsa ólínulegri tilvist mannsins á línulegu formi bókmenntanna. Listform sem gerir ráð fyrir því að byrjað sé á ákveðnum stað og endað á öðrum er ekki sérlega vel til [...]

Lífið er absúrdleikrit

2019-06-04T08:49:23+00:001. mars 2014|

Oft er talað um að erfitt sé fyrir skáld og rithöfunda að koma með verk númer tvö ef fyrsta verk þeirra hefur tekist sérstaklega vel. Nú er Auður Ava Ólafsdóttir auðvitað reyndur og margverðlaunaður höfundur en Svanir skilja ekki sem var frumsýnt í Kassanum í gær er bara annað leikrit hennar og það fyrra, Svartur [...]

„Tótal teater“

2019-08-23T15:23:52+00:0018. september 2011|

Í gærkvöldi var svo Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur frumsýndur í Kassanum í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fyrsta leikrit þessa dáða skáldsagnahöfundar bar sannarlega engin byrjandamerki; það skal sagt undir eins í upphafi að þetta var einstaklega frumleg, falleg og fyndin sýning. Það var freistandi í hléi og eftir sýningu að ímynda [...]