Þú ert hér://Tag: Árni Þór Lárusson

Macbeth í austurvegi

2023-02-08T16:41:29+00:0014. janúar 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Macbeth eftir William Shakespeare í nýrri prýðilegri þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar. Leikstjóri var undrabarn frá Litháen, Uršulė Barto, Milla Clarke hannar leikmynd, Liucija Kvašytė sér um búninga og leikgervi, Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson um tónlistina en hljóðmyndin er í höndum Þorbjörns Steingrímssonar. Lýsingin og hin viðamikla [...]

Sannleikurinn er sagna verstur

2022-05-17T10:19:41+00:0010. apríl 2022|

Leikfélag Reykjavíkur og CommonNonsense frumsýndu í gær samtímafarsann Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson á Nýja sviði Borgarleikhússins. Breiða pallastofu með hringstiga innst upp á efri hæðir skapar Ilmur Stefánsdóttir og hún sér líka um í bland dálítið fríkaða búninga og leikgervi (með Elínu S. Gísladóttur); til dæmis þekkti ég ekki Þórunni Örnu Kristjánsdóttur fyrr en [...]

Nostalgían lifnar við

2021-12-06T16:36:33+00:006. desember 2021|

Það dekrar við fortíðarþrána í manni að horfa á uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Emil í Kattholti sem var frumsýnd um helgina á stóra sviði Borgarleikhússins. Ég sá aðra sýningu, í gær sunnudag, vegna þess að leikhúsfélagi minn tæplega fjögra ára var enn í smitgát á laugardaginn en sloppinn í gær. Sviðið hennar Evu Signýjar Berger [...]

Doktor Fástus yngdur upp

2019-06-18T11:25:05+00:0013. mars 2013|

Þau ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur MR-ingarnir sem nú sýna Doktor Fástus í myrku ljósi í Tjarnarbíó. Þetta er um það bil 75 ára gamalt verk eftir bandaríska framúrstefnuhöfundinn Gertrud Stein og þar eru sannarlega ekki farnar beinustu leiðir að efninu en það varð dillandi skemmtilegt hjá krökkunum undir hugmyndaríkri stjórn [...]

Draumur í dós

2019-08-24T13:25:36+00:009. mars 2011|

Herranótt MR tekur þátt í Shakespeareveislu vetrarins með uppsetningu á Draumi á Jónsmessunótt undir stjórn Gunnars Helgasonar. Sýningin er í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og hefur verið afar vinsæl, jafnvel svo að fólk hefur orðið frá að hverfa. Það má tína til margt til að skýra vinsældirnar. Fyrst það að þetta er eitt alskemmtilegasta leikrit meistarans, [...]