About Silja Aðalsteinsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Silja Aðalsteinsdóttir has created 267 blog entries.

Gullæði

2025-10-03T17:57:42+00:003. október 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi einleikinn Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur fyrir viku síðan en aðstæður ollu því að ég sá það ekki fyrr en í gærkvöldi. Kolbrún leikstýrir verki sínu sjálf og þýðir það ásamt móður sinni, Friðriku Benónýsdóttur, því að leikritið er skrifað á ensku og var upprunalega sýnt í Skotlandi. Leikmynd og búninga [...]

„Ég ætla bara …“

2025-09-29T11:10:27+00:0029. september 2025|

Einar Áskell er vinur margra kynslóða Íslendinga, enda er þetta góður drengur og tiltölulega þægur og eftirlátur við pabba sinn þó að hann þurfi stundum „bara aðeins …“ áður en hann gerir það sem fyrir hann er lagt. Ný sýning um piltinn, Engan asa, Einar Áskell, var frumsýnd í Kaldalóni Hörpu í gær, unnin upp [...]

Elskaðu – og vertu elskaður

2025-09-28T14:38:18+00:0028. september 2025|

Mér er nær að halda að það hafi orðið tímamót í íslensku leikhúsi í gærkvöldi þegar Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi söngleikinn Moulin Rouge á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Fyrst og fremst var það dansinn og hópatriðin sem þar gerðu útslagið – fimin, aginn, samhæfingin, fagmennskan, innlifunin, ástríðan, allt var þetta svo fullkomlega heillandi [...]

Feðraveldið fær á baukinn

2025-09-27T16:09:46+00:0027. september 2025|

Leikfélagið Silfurskeiðin frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó Jónsmessunæturdraum eftir William Shakespeare í úrvalsþýðingu Þórarins Eldjárn. Leikstjórar eru María Ellingsen og Magnús Thorlacius, og Eyja Gunnlaugsdóttir kom til aðstoðar þegar Magnús þurfti að hverfa frá; búninga og leikmynd sér Íris Ólafsdóttir um, Sóley Ólafsdóttir samdi sviðshreyfingar, Ronja Jóhannsdóttir samdi tónlistina og skapaði hljóðmyndina en Fjölnir Gíslason [...]

„Lína, það er ég“

2025-09-14T11:34:17+00:0014. september 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær splunkunýja uppsetningu á Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í leikgerð Staffans Götestam, þýðingu Þórarins Eldjárn og leikstjórn Agnesar Wild. Um þessar mundir eru áttatíu ár síðan þessi ástsæla persóna birtist fyrst á prenti i heimalandi höfundar, Svíþjóð, við misjafnar viðtökur fullorðinna en óskoraðan fögnuð barna, og nú er hún sennilega frægasta [...]

Velkomin um borð

2025-08-23T12:43:44+00:0023. ágúst 2025|

Tjarnarbíó hóf leikárið ´25–´26 í gærkvöldi með nýju íslensku leikverki, 40.000 fetum. Höfundar eru Aldís Ósk Davíðsdóttir og Birta Sól Guðbrandsdóttir sem einnig leika kvenhlutverkin; sviðsmyndin sem tekur mið af innra byrði flugvélar er eftir Silju Rún Högnadóttur en Arna Tryggvadóttir hannaði lýsinguna. Iðunn Gígja Kristjánsdóttir flutti sjálf eigin tónlist á sviðinu og tók virkan [...]

Hrói höttur hittir Þyrnirós

2025-08-21T12:21:04+00:0021. ágúst 2025|

Það er skammarlegt að hafa fyrst núna séð sumarsýningu Leikhópsins Lottu í Elliðaárdal, en mun betra er seint en aldrei. Í sumar sýna þau sína útgáfu af Hróa hetti og ég veit að það kemur ykkur stórlega á óvart að frétta að í rauninni þekktust þau Hrói og Þyrnirós og voru ágætir vinir! Í útgáfu [...]

Ólæknandi harmur Dídó drottningar

2025-07-14T12:38:26+00:0014. júlí 2025|

Lokaatriðið á Sumartónleikum í Skálholti að þessu sinni var leikrænn flutningur á óperunni Dido & Aeneas eftir enska 17. aldar tónskáldið Henry Purcell. Samkvæmt inngangsorðum Benedikts Kristjánssonar, listræns stjórnanda Sumartónleikanna, var þetta í fyrsta skipti sem ópera var flutt í Skálholtskirkju og af því tilefni var kirkjubekkjum raðað eftir endilöngu kirkjuskipinu með breiðum gangvegi í [...]

Gunnella fær gest

2025-07-10T12:29:55+00:0010. júlí 2025|

Katla Þórudóttir Njálsdóttir sýnir nú hjá Afturámóti í Háskólabíó verk sitt Gunnellu. Leikstjóri er Killian G.E. Briansson en leikmyndina hönnuðu Katla sjálf, Þóra Pétursdóttir og Sævar Guðmundsson. Leikmyndin styður vel við persónusköpun Gunnellu, form, litir og (ekki síst) myndirnar á veggnum. Ekki er þess getið í upplýsingum hver sér um lýsingu en hún fannst mér skipta máli [...]

Oh, my Cod!

2025-07-05T10:21:32+00:004. júlí 2025|

Það var mikið hrópað og hlegið í sal 1 í Háskólabíó þegar Afturámóti frumsýndi rapp/rokk-óperuna Þorskasögu eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Hafsteinn leikstýrir sjálfur en hefur Kristin Óla Haraldsson með sér sem dramatúrg.  Glitrandi hreisturbúninga hannaði Hulda Kristín Hauksdóttir, tónlistarstjóri er Kolbrún Óskarsdóttir, afar mínimalíska leikmynd hannaði Egle Sipaviciute en kórstjórn sá Hanna Ragnarsson [...]