Þú ert hér://elin

About elin

This author has not yet filled in any details.
So far elin has created 875 blog entries.

Frida, Harry og Heimir

2020-01-30T16:43:17+00:0013. september 2009|

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á ... Lesa meira

„Sannmáll þú varst en sætmáll ei“

2020-03-11T10:29:07+00:003. september 2009|

Kristmundur Bjarnason. Amtmaðurinn á Einbúasetrinu: Ævisaga Gríms Jónssonar. Iðunn, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2009. Óvíst er að nafn Kristmundar Bjarnasonar sé sérlega þekkt utan hóps áhugamanna um þjóðleg fræði eða innvígðra Skagfirðinga. Því má gera sér í hugarlund að fáum séu ljós afrek þessa starfsama Skagfirðings á akri bókmennta og fræða. ... Lesa meira

Átök á háaloftinu

2020-01-30T16:54:58+00:0026. ágúst 2009|

Það fylgdi því ekta sælutilfinning – auk ávænings af dejavu – að príla upp á háloft í Batteríinu í gær til að fara á leiksýningu. Minnti á góða gamla daga í London á áttunda áratugnum þegar maður staulaðist upp og niður margan hænsnastigann í leit að sannri upplifun. Oftar en ekki fannst hún. Og í ... Lesa meira

Hús næði

2019-05-20T13:23:39+00:007. júlí 2009|

Eftir Þórarin Eldjárn Gefast ekki grið í griðastað guðað á glugga bankastjórans: má ég vera? heima - – - (úr ljóðabók Þórarins Eldjárn, Ydd, frá 1984.  Kvæðasafn Þórarins Eldjárn kom út hjá Vöku-Helgafelli 2008).

Sturlunga Einars Kárasonar

2020-03-11T10:28:02+00:0010. júní 2009|

Einar Kárason. Ofsi. Mál og menning, Reykjavík. 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009.   Frásögnin af Flugumýrarbrennu í Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar er vafalaust ein áhrifamesta frásögn Sturlungu. Sturla undirbýr lýsinguna af brennunni af útsjónarsemi og listfengi hins mikla sögumanns. Hann raðar upp svipmyndum af sáttargjörð sinni og Gissurar Þorvaldssonar, fyrirboðum og beyg ... Lesa meira

Hylki utan um ekkert

2020-03-11T10:29:51+00:0010. júní 2009|

Guðrún Eva Mínervudóttir. Skaparinn. Forlagið, Reykjavík, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009. Í einu þekktasta prósaverki breskrar rómantíkur segir af vísindamanni sem raðar saman illa fengnum líkamspörtum svo úr verður ný vera, furðuverk sem ögrar viðteknum mörkum um lífræna heild og hið mennska. Í þessa smíð er svo hleypt lífi með rafmagni, ... Lesa meira

Þar sem kettir lifa og deyja

2020-03-11T10:28:40+00:0010. júní 2009|

Hermann Stefánsson. Algleymi. Bjartur, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009. Rithöfundurinn Guðjón Ólafsson opnar augun eftir fjörutíu daga meðvitundarleysi og „hvít veröld hrynur inn í huga hans, samhengislaus og framandi“ (7). Hann er á sjúkrahúsi og hefur misst minnið og raunar málið líka. Hann veit ekki hvað kom fyrir hann og man ... Lesa meira

Make love, not war

2020-03-11T10:32:31+00:0010. júní 2009|

Hallgrímur Helgason. 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp. JPV, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009. Hallgrímur Helgason er kunnur af því að fá óvenjulegar hugmyndir og færast mikið í fang við ritun skáldsagna sinna. Þessi nýja bók hans er þar engin undantekning. Hann hefur sett ... Lesa meira

Bókin um Lárus Pálsson

2020-03-11T10:28:14+00:0010. júní 2009|

Þorvaldur Kristinsson. Lárus Pálsson leikari. JPV útgáfa, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009. Þessi bók er fagnaðarefni. Hún er það af ýmsum orsökum. Í fyrsta lagi er hún ágætt framlag til þess að kveða niður þann gamla draug að enginn sé eins dauður og dauður leikari. Og víst er um það að ... Lesa meira

Við borgum ekki í Borgó

2020-01-30T16:57:57+00:007. júní 2009|

Það er eitthvað dásamlegt við tilhugsunina um að leikskáldið sem skrifaði farsann Við borgum ekki, við borgum ekki hafi fengið sjálf Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Þetta er arfavitlaust verk að öllu leyti – nema boðskapnum auðvitað – en svo hryllilega fyndið að maður missir sig gersamlega. Eins og einhver trúi því að fullorðinn karlmaður taki trúanlegt að kona ... Lesa meira