Þú ert hér://Leikdómar

Leikdómar Silju Aðalsteinsdóttur eru ómissandi partur af menningarlífi Íslendinga.

Að hverju hlæjum við?

2019-08-08T16:28:46+00:0010. mars 2012|

Ég játa að ég tengdi sjaldan við gleðileiki Shakespeares á sýningu Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar, Úps!, í Tjarnarbíói í gærkvöldi sem Víkingur Kristjánsson stýrir. Jú, vissulega fór Hannes Óli Ágústsson einu sinni í kjól sem gat verið vísun í að á tímum Shakespeares voru kvenhlutverk leikin af körlum, og einu sinni tíndust allir þátttakendur inn á sviðið ... Lesa meira

Sýning ársins

2019-08-08T17:07:58+00:006. mars 2012|

Sýning ársins / Mynd: Björn Snorri Rosdahl Sviðslistahópurinn 16 elskendur skemmtu áhorfendum vel í Borgartúni 6 á sunnudagskvöldið þar sem þau bjuggu til óvænta „leiksýningu“ úr félagsfræðilegri rannsókn. Aðdragandinn var sá að Félagsvísindastofnun HÍ gerði athugun á því í samvinnu við 16 elskendur hvað Íslendingar vilja sjá í leikhúsi. Úr flóknum og margslungnum ... Lesa meira

Beisk barátta ills og góðs

2019-08-08T16:52:22+00:004. mars 2012|

Það var mikið hrópað og klappað í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi að lokinni þriggja tíma maraþonsýningu á Vesalingunum. Enda var ástæða til. Leikhúsið hafði tjaldað til mörgum sínum allrabestu söngkröftum, svið Finns Arnars Arnarsonar var óvænt og áhrifamikið, Tónlistin kom ekki úr hátölurum heldur beint upp úr gryfjunni undir styrkri stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar, búningar Maríu ... Lesa meira

Glóandi kvika undir hrauni

2019-08-08T17:08:27+00:0025. febrúar 2012|

Það sem Eugene O’Neill vissi svo vel var að tilfinningarnar sem við berum til okkar nánustu eru aldrei neitt eitt, ást, hatur, reiði, öfund, fyrirlitning, heldur flókin blanda af þessu öllu saman. En eitt er að vita og annað að koma í orð og athöfn eins og hann gerir svo snilldarlega í Dagleiðinni löngu sem ... Lesa meira

Stóri bróðir lærir að verða stór

2019-08-08T17:12:23+00:0018. febrúar 2012|

Helga Arnalds brúðulistakona með meiru sýnir nú í kjallara Norræna hússins leikritið Skrímslið litla systir mín undir stjórn Charlotte Bøving sem líka samdi handritið með Helgu. Sagan sem hún segir er alltaf að gerast en er samt alltaf ný og aldrei alveg eins og vekur ævinlega jafnsterk viðbrögð hjá öllum viðkomandi: Barn eignast systkini. Í ... Lesa meira

Banvænar ástríður

2019-08-08T17:28:41+00:0018. febrúar 2012|

Leikhópurinn Aldrei óstelandi hefur gert óhamdar ástríður að sérgrein sinni. Enn er í fersku minni útfærsla hans á Fjalla-Eyvindi í fyrra og í sýningunni Sjöundá í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu tekur hann nú fyrir hina hryllilegu og átakanlegu sögu af fólkinu á bænum Sjöundá á Rauðasandi sem Gunnar Gunnarsson túlkaði á sinn hátt í skáldsögunni Svartfugli. ... Lesa meira

Bragðvísin sigrar

2019-08-08T17:27:39+00:0012. febrúar 2012|

Sagan um Jóa og baunagrasið hefur verið vinsæl í alls konar útfærslum í upp undir tvær aldir enda alveg ekta ævintýri, meira að segja með nettu kolbítsminni. Jói er óttalega lítil hjálp einstæðri móður sinni örsnauðri og þegar hann er sendur til að selja einu kúna þeirra svo að þau hafi eitthvað til að lifa ... Lesa meira

Nýjar biblíusögur

2019-08-08T17:55:57+00:005. febrúar 2012|

Hugleikur frumsýndi í gærkvöldi í húsnæði sínu að Eyjarslóð 9 leikritið Sá glataði eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, sprellfjöruga útfærslu á nokkrum dæmisögum Jesú undir stjórn Ágústu Skúladóttur. Mikil músík er í verkinu, samin og leikin af Elísabetu Indru Ragnarsdóttur á fiðlu og sungin af leikhópnum við texta eftir Þorgeir Tryggvason og undir tónlistarstjórn hans. Tónlistin ... Lesa meira

Saga konunnar sem söng

2019-08-08T17:52:05+00:0027. janúar 2012|

Ég vissi ekkert um Eldhaf eftir Wajdi Mouawad áður en ég fór á frumsýninguna á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi og það reyndist vera svo áhrifamikið – að vita ekki neitt fyrirfram – að mér er skapi næst að segja ekkert um verkið eða höfund þess í þessum pistli. Láta duga að hvetja alla sem ... Lesa meira

Alltaf á sunnudögum

2019-08-08T17:45:46+00:0022. janúar 2012|

Það er virkilega gaman að horfa á strákana í Póker í Tjarnarbíó spjalla, gantast, þrefa, rífast og tuskast. Þeir eru svo eðlilegir á sviðinu þó að það sé þröngt og áhorfendur sitji beggja vegna við það – næstum eins og þeir viti ekki af okkur í kringum sig. Þarna hefur leikstjórinn, Valdimar Örn Flygenring, unnið ... Lesa meira