Þú ert hér://Tag: Vilhjálmur B. Bragason

Ennþá gerast ævintýr

2026-07-12T15:43:26+00:0011. júlí 2026|

Afturámóti frumsýndi í gærkvöldi í Háskólabíó ævintýraleikinn Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks eftir Einar Baldvin Brimar. Leikstjóri er Egill Andrason og hann annaðist líka tónlistarstjórn og hljóðhönnun; Helga Brá Brimar hannaði fjölda ævintýralegra búninga en María Jóngerð Gunnlaugsdóttir hannaði lýsingu. Í þennan ástardrykk blandar höfundur saman efni úr hinum ólíklegustu áttum: ævintýrum, riddarasögum, óperum og arabískum nóttum [...]

Goðsaga fær nýtt líf

2026-10-16T14:36:37+00:0022. júní 2026|

Það dregur ekki fjöður yfir það, unga fólkið í Afturámóti, að það sé að vinna með gamalkunnugt efni í uppsetningu sinni á söngleiknum Með allt á hreinu í Háskólabíó. Þvert á móti leggja þau höfuðáherslu á það með því að skipa tvö úr hópnum, Gæruna Dýrleifu (Katla Þ. Njálsdóttir) og Stuðmanninn Skafta Sævars (Kristinn Óli [...]

Var lífið betra þá?

2025-10-13T12:25:16+00:0013. október 2025|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á laugardagskvöldið í Samkomuhúsinu gamanleikinn Elskan, er ég heima? (Home, I‘m Darling) eftir enska leikskáldið Lauru Wade í ágætri þýðingu Vilhjálms B. Bragasonar. Leikstjóri er Ilmur Kristjánsdóttir. Börkur Jónsson hannar leikmyndina en Björg María Gunnarsdóttir búninga, Sigurjón Kjartansson sér um tónlist en Gunnar Sigurbjörnsson um hljóð og Lárus Heiðar Sveinsson um lýsingu. [...]

„Ég ætla bara …“

2025-09-29T11:10:27+00:0029. september 2025|

Einar Áskell er vinur margra kynslóða Íslendinga, enda er þetta góður drengur og tiltölulega þægur og eftirlátur við pabba sinn þó að hann þurfi stundum „bara aðeins …“ áður en hann gerir það sem fyrir hann er lagt. Ný sýning um piltinn, Engan asa, Einar Áskell, var frumsýnd í Kaldalóni Hörpu í gær, unnin upp [...]

Þegar ástin var bönnuð

2020-10-12T10:42:17+00:005. október 2020|

Maí 1933. Mig hefur dreymt heim á hverri nóttu síðan ég kom hingað, svo þú sérð að hugurinn er hjá ykkur. Samt líður mér vel. Ferðin gekk vel, ekkert sjóveik, fór svo með drossíu hingað og það hefði verið lystitúr á vegi eins og hér er, hefði ég ekki verið að fara á hæli … [...]

Við lifum það af

2019-05-08T15:47:34+00:0018. mars 2016|

Tveir ungir leikarar sem saman kalla sig Vandræðaskáld sýndu í gærkvöldi í Tjarnarbíó frumsamið leikverk með söngvum (sem einnig voru frumsamdir, bæði lög og ljóð) sem þau kalla Útför – saga ambáttar og skattsvikara. Þetta voru Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason, bæði menntuð í leiklist í Englandi, og nafnið á stykkinu útskýra þau svona [...]