Þú ert hér://Tag: Vilhelm Neto

Fjötrar fortíðar

2026-10-16T14:24:35+00:0020. september 2026|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Svikasögur eftir Maríu Reyndal, höfundur leikstýrir sjálf. Aðstoðarleikstjóri er Egill Andrason en dramatúrgar Maríanna Clara Lúthersdóttir og Æsa Guðrún Bjarnadóttir. Eva Signý Berger hannaði þriggja hæða fjölskylduhúsið á sviðinu sem gaf manni nóg að horfa á og hugsa um, og hún sá líka um búninga sem [...]

Kona vill skilja

2024-10-12T14:43:07+00:0012. október 2024|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Óskaland eftir bandaríska leikskáldið Bess Wohl í lipurri þýðingu Ingunnar Snædal. Hilmir Snær Guðnason leikstýrði en Börkur Jónsson gerði áferðarfallega en gelda leikmyndina sem reyndist vera góð mynd af lífi fólksins í húsinu. Búningar Urðar Hákonardóttur voru vel við hæfi, einkum var snjallt að klæða utanaðkomandi [...]

Orkusprengjan Fíasól

2023-12-06T16:11:21+00:003. desember 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær barnaleikritið Fíasól gefst aldrei upp á stóra sviðinu. Textinn er unninn upp úr fimm geysivinsælum bókum eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem komu út á tímabilinu 2004–2018, og ekki er það síst síðasta bókin, samnefnd leikverkinu, sem setur svip sinn á sýninguna. Leikgerðina unnu þær Maríanna Klara Lúthersdóttir og Þórunn Arna [...]

Gömul saga og glæný

2023-10-03T09:56:27+00:0030. september 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi af margföldu tilefni sjötugan söngleik þeirra bræðra og snillinga Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Deleríum búbónis. Bergur Þór Ingólfsson lagaði verkið að nýjum tíma og leikstýrir sýningunni eins og fer ekki framhjá neinum. Þar er skörp kímnigáfa hans við stjórn, glöggt auga hans fyrir tímasetningum og óbrigðult næmi hans á [...]

Um vellíðan eða …?

2023-03-06T21:32:53+00:0026. febrúar 2023|

Fjórmenningarnir í uppistandshópnum VHS frumsýndu nýja sýningu í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir heitinu VHS velur vellíðan. Boðorð tímans er að við eigum að stunda líkamsrækt og hugsa vel um líkamann og öll fjögur hefja þau atriðið sitt á stuttu vídeói til að minna á þetta boðorð. Vilhelm Neto fer í nudd, Hákon Örn í ræktina, [...]

Ég um mig frá mér til mín

2022-09-30T12:09:28+00:0024. september 2022|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Bara smástund á stóra sviðinu í gærkvöldi, ekta franskan gamanleik eftir Florian Zeller undir vel hugsaðri leikstjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur. Sverrir Norland þýddi einkar lipurlega. Við erum stödd í glæsiíbúð Michels (Þorsteinn Bachmann) og Nathalie (Sólveig Arnarsdóttir) sem Helga Stefánsdóttir hefur búið húsgögnum og listaverkum af smekkvísi. Michel er kampakátur því að [...]

Hin fjögur fræknu

2021-10-16T16:37:46+00:0016. október 2021|

Ég hef ekki fram að þessu talið mig hafa mikinn smekk fyrir uppistand, en sannarlega skemmti ég mér í gærkvöldi i Tjarnarbíó þar sem fjögur frábær ungmenni koma nú fram, hvert með sína sýningu en undir yfirheitinu VHS krefst virðingar. Skammstöfunin stendur fyrir nöfnin þeirra: Vilhelm Neto, Vigdís Hafliðadóttir, Hákon Örn Helgason og Stefán Ingvar [...]