Þú ert hér://Tag: Víkingur Kristjánsson

Karamazov-fjölskylda á 21. öld

2019-06-19T11:08:48+00:0031. október 2012|

Það kemur fram í viðtali við Richard LaGravanese, annan höfund Bastarða sem nú eru sýndir í Borgarleikhúsinu, að innblásturinn hafi þeir Gísli Örn Garðarsson fengið úr skáldsögu Dostojevskís, Karamazov-bræðrunum. Þaðan spretta persónur verksins og litríkur textinn er undir áhrifum þaðan. Vissulega eru Bastarðar einfalt verk miðað við geysilanga og flókna skáldsöguna en írónían er lúmskari [...]

Að hverju hlæjum við?

2019-08-08T16:28:46+00:0010. mars 2012|

Ég játa að ég tengdi sjaldan við gleðileiki Shakespeares á sýningu Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar, Úps!, í Tjarnarbíói í gærkvöldi sem Víkingur Kristjánsson stýrir. Jú, vissulega fór Hannes Óli Ágústsson einu sinni í kjól sem gat verið vísun í að á tímum Shakespeares voru kvenhlutverk leikin af körlum, og einu sinni tíndust allir þátttakendur inn á sviðið [...]

Leikur einn

2019-08-23T16:27:03+00:0025. júní 2011|

Bárðar saga Snæfellsáss er safn ævintýralegra sagna af mönnum, tröllum og vættum. Við margar sagnanna kemur frændalið norska hálfrisans Bárðar Dumbssonar sem seinna fékk auknefnið Snæfellsás, en einkum hann sjálfur, Helga dóttir hans og Gestur sonur hans. Úr þessum sagnafans hefur Kári Viðarsson unnið einleikinn Hetju sem hann hefur sýnt á nokkrum stöðum og nú [...]

Hálf öld á Bessastöðum

2019-08-23T16:48:18+00:0028. apríl 2011|

Vesturport fylgir eftir Evrópsku leiklistarverðlaununum sem þau fengu fyrr í þessum mánuði með frumsýningu á Húsmóðurinni, farsakenndum gamanleik sem er sýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins. Salnum er alveg umbylt af þessu tilefni. Nærri salarbreitt sviðið er þar sem sæti áhorfenda eru venjulega og þaðan gengur pallur út og klýfur áhorfendasvæðið snyrtilega í tvennt. Á sviðinu [...]

Um ótryggt líf valdhafa

2019-08-24T14:47:48+00:008. janúar 2011|

Íslenska  hreyfiþróunarsamsteypan byrjar á endinum í Kandílandi, dansverkinu sem verið er að sýna í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Líklega hafa þau verið að hugsa um málsháttinn „í upphafi skyldi endinn skoða” því strax þá, í fjölbreyttum tilburðum leikara í framkalli, reyndu þau að toppa hvert annað, taka ný afbrigði af þakkarviðbrögðum að láni frá næsta manni [...]

,,Þetta er teater”

2020-01-30T15:23:39+00:0016. janúar 2010|

Margt kom mér skemmtilega á óvart þegar ég fór að lesa mér til um Faust í tilefni af uppsetningu Vesturports á samnefndu verki á stóra sviði Borgarleikhússins. Til dæmis það að persóna þjóðsagna og bókmennta á sér raunverulega fyrirmynd ef marka má Salmonsens konversationsleksikon frá 1918, dr. Johann Faust, þekktan farandspámann og svartagaldramann sem fæddur [...]