Þú ert hér://Tag: Verdi

Stjarna fædd

2019-03-18T13:29:53+00:0010. mars 2019|

Það mega landar mínir eiga að þeir vita hvenær þeir verða vitni að listrænum stórviðburði. Í lok frumsýningar í Íslensku óperunni í gærkvöldi var hverjum hópnum af öðrum fagnað vel og innilega: dönsurum, fjölmennum Kór Íslensku óperunnar, einsöngvurum. Hrólfur Sæmundsson (Giorgio Germont) fékk innilegt lófatak þegar hann gekk inn þriðji síðastur. Næstur kom Elmar Gilbertsson [...]

Hvað er auður og afl …?

2019-05-22T14:08:47+00:0019. október 2014|

Maður mátti hafa sig allan við að fá ekki alvarlegt kast af þjóðernishroka undir frumsýningunni á Don Carlo í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Á snilldarlega hönnuðu sviði Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur, frumlega lýstu af Páli Ragnarssyni, steig fram hver glæsilegi söngvarinn af öðrum og lék og söng hlutverk sitt í einni mestu óperu Verdis undir styrkri [...]

Bræður munu berjast …

2019-06-18T18:02:20+00:005. nóvember 2012|

Það er engu logið á uppsetningu Íslensku óperunnar á Il trovatore Verdis í Eldborgarsal Hörpu. Hljómsveitin leikur skínandi vel undir stjórn Carol I. Crawford, einsöngvararnir syngja hver öðrum betur og kórinn er flottur undir stjórn Halldórs E. Laxness. En eiginlega fannst mér sviðið hans Gretars Reynissonar stela senunni hvað eftir annað í göldróttri lýsingu Björns [...]

Sungið um ástir og hefnd

2019-09-05T22:03:12+00:0015. október 2010|

Sagan sem ópera Verdis Rigoletto segir er mögnuð og vel til fundið hjá leikstjóranum, Stefáni Baldurssyni, að flytja hana inn í undirheima Ítalíu í nútímanum. Með því minnir hann á að enn eru þeir feður til sem halda að þeir geti verndað dætur sínar með því að loka þær inni og enn er ungum stúlkum [...]