Þú ert hér://Tag: Þórunn Guðmundsdóttir

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Ég á gull að gjalda – en gráta ekki má

2022-09-30T14:24:07+00:002. september 2022|

Ævintýraóperan Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur – bæði texti og tónlist – var frumsýnd í Gamla bíói í gærkvöldi. Ég hef áður séð nokkrar gamanóperur Þórunnar, byggðar á þjóðararfinum, og þær hafa allar verið eftirminnilega skemmtilegar, textinn vel ortur og fyndinn og tónlistin vel samin og aðlaðandi í klassískum og þjóðlegum stíl án þess kannski að [...]

Ó, þetta er indælt stríð

2019-12-02T16:57:17+00:001. desember 2019|

Í pistli sínum í leikskrá Gestagangs segir leikstjórinn, Þorgeir Tryggvason, að áhugaleikfélagið Hugleikur hafi verið stofnað til að „borgarbúum byðust loksins sömu tækifæri til listsköpunar og landsbyggðafólkið hafði notið eins lengi og elstu menn mundu“. Í nýju sýningunni má sjá þessa hugsjón í verki því alls taka þar þátt yfir þrjátíu manns, leikarar og hljómlistarmenn. [...]

Ævintýrin gerast enn

2019-03-12T16:09:37+00:005. febrúar 2019|

Þið eruð líklega mörg búin af missa af ævintýraóperunum hennar Þórunnar Guðmundsdóttur i Iðnó, því miður, allar sýningarnar voru um helgina. Það er talsverður missir því þetta voru afar skemmtileg, áheyrileg og ásjáleg verk. Það voru nemendur í Menntaskólanum í tónlist og leikfélagið Hugleikur sem stóðu að sýningunni. Þetta voru tvær ævintýraóperur. Sú fyrri, „Ár [...]

„Þar skall helvítis hurð nærri hælum“

2019-05-20T16:31:19+00:0016. mars 2015|

Það fór kannski ekki mjög hátt en í gærkvöldi var frumsýnd í Iðnó ný íslensk ópera, Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Hún er löngu þekkt meðal leikhúsáhugamanna – að minnsta kosti Hugleikhúsáhugamanna – fyrir leikrit sín, óperur og söngleiki, síðasta verk hennar af því tagi var Stund milli stríða sem var valin besta áhugaleikhússýningin í [...]

Sögulegur afmælissöngleikur

2019-05-28T00:09:45+00:0013. apríl 2014|

Áhugaleikfélagið Hugleikur er þrítugt í ár og setur nú upp sína fertugustu sýningu í fullri lengd í Tjarnarbíó. Þetta er söngleikurinn Stund milli stríða eftir Þórunni Guðmundsdóttur, ekta hugleiksk skemmtun undir stjórn Jóns St. Kristjánssonar. Óhætt er að hvetja alla sem unna góðum söngtextum, áheyrilegum og söngvænum lögum og hnyttnu, sögulegu spéi til að drífa [...]