Þú ert hér://Tag: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

Lækningamáttur játninga

2022-05-17T09:43:06+00:0023. apríl 2022|

Fyrir níu árum, í apríl 2013, skrifaði ég umsögn um fyrsta leikrit Tyrfings Tyrfingssonar, einþáttung sem var einn af þremur eftir ný leikskáld sem sýndir voru saman undir yfirskriftinni Núna í Borgarleikhúsinu. Þar segir: „Annaðhvort gat Skúrinn á sléttunni verið útdráttur úr löngu leikriti eða fyrsti þáttur í lengra verki. Það breytir þó ekki því að þetta [...]

Puffin etketera

2019-05-03T16:45:59+00:0029. október 2016|

Ég veit ekki hvað forsvarsmenn stjórnarflokkanna segðu ef þeir hefðu séð leiksýninguna sem frumsýnd var kvöldið fyrir kjördag. Extravaganza eftir Sölku Guðmundsdóttur, sem Soðið svið og Borgarleikhúsið frumsýndu í gær á Nýja sviði, er kolsvartur söng- og gamanleikur sem segir eins skýrt og verða má að hér á landi á (eins og skáldið sagði) sé [...]

Leiðin til Rómar

2019-05-27T13:01:24+00:0018. október 2014|

Ekki get ég neitað því að ég kveið ofurlítið fyrir að sjá á sviði leikgerðina af Karítas, tveggja binda skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. Verkið er mikil epík, það segir svo langa sögu, teygir sig yfir heila öld, fer svo víða og segir frá svo mörgum persónum að það virtist óðs manns æði að gera því [...]

Margslunginn veruleiki

2019-06-12T15:22:55+00:008. september 2013|

Frumsýningar þessa sunnudags voru gerólíkar að flestu leyti. Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur sem Soðið svið sýnir í Kúlu Þjóðleikhússins er viðburðaríkt ævintýri, fullt af óvæntum uppákomum og furðulegum persónum en grunnurinn ákaflega raunverulegur. Blik eftir Bretann Phil Porter sem Artik sýnir í Gamla bíó í þýðingu Súsönnu Svavarsdóttur er hversdagsraunsæi í sinni afbrigðilegustu [...]

Minna rugl – meira tempó

2019-08-24T14:29:38+00:0017. janúar 2011|

Ung kona fer í fjarlæga eyjarbyggð til að rannsaka kafla í sögu staðarins og skrifa fræðiritgerð um hann. En hún fær óljós svör við spurningum sínum, allir hafa einhverju að leyna, og loks kemur upp úr dúrnum að hún leikur líka tveim skjöldum sjálf. Þetta efni hljómar kunnuglega, það endurómar spennusögur af ýmsu tagi. Enda [...]