Gauksungi í arnarhreiðri
Það lá nærri því áþreifanleg eftirvænting í loftinu í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi fyrir frumsýningu á nýju leikriti Braga Ólafssonar, Maður að mínu skapi. Eflaust hefur flestum leikhúsgestum verið í fersku minni hvað síðasta verk Braga á sviði, Hænuungarnir, var skemmtilegt og búist við svipuðu verki frá hópi sem er næstum því sá sami: Sami leikstjóri, [...]