Þú ert hér://Tag: Þórey Birgisdóttir

Óvænt ákvörðun Ífigeníu

2025-03-09T13:00:31+00:0017. janúar 2025|

Þórey Birgisdóttir frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó þýðingu sína og leikstjórans, Önnu Maríu Tómasdóttur, á einleik Bretans Garys Owen, Ífigenía í Ásbrú. Hljóðmynd gerir Kristín Hrönn Jónsdóttir og mikilvæg lýsingin var verk Ástu Jónínu Arnardóttur. Það er gaman að vera leikhúsrotta og fá að sjá og heyra hverja mögnuðu kvennasöguna á fætur annarri í leikhúsinu [...]

„Búum til betri heim“

2023-03-06T11:53:38+00:006. mars 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu fjölskyldusöngleikinn Draumaþjófinn eftir Björk Jakobsdóttur sem byggður er á skáldsögu Gunnars Helgason með sama nafni frá 2019. Dillandi fjörug tónlistin er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson sem er líka tónlistarstjóri en söngtextana sömdu þau sundur og saman Björk, Gunnar og Hallgrímur Helgason. Ævintýraleg leikmyndin, dularfullur, margslunginn, sannfærandi og hrífandi [...]

„Love is all around“

2023-02-08T16:17:14+00:0021. janúar 2023|

Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]

Leikur án orða

2022-10-24T12:06:05+00:0024. október 2022|

Leikhópurinn Baun í bala frumsýndi fyrir nokkru nýja algrímusýningu í Tjarnarbíó sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir ásamt Orra Hugin Ágústssyni. Verkið heitir Hríma og segir frá fullorðinni einsetukonu, Hrímu (Aldís Davíðsdóttir) sem býr á afskekktum stað í heldur ótótlegu húsnæði gerðu mestmegnis úr teppum og lökum. Þar hefur hún lokað sig inni með gömlum minningum – [...]

Hvar er Ljónsi?

2021-11-23T08:42:18+00:0013. nóvember 2021|

Það opnaðist furðustór ævintýraveröld á litla sviðinu í Kúlu Þjóðleikhússins í dag á frumsýningu á Láru og Ljónsa – jólasögu eftir Birgittu Haukdal sem Guðjón Davíð Karlsson stýrir. Á sviðinu hennar Maríu Th. Ólafsdóttur er barnaherbergi með öllu þessu venjulega, rúmi, fataskáp og eldhúsdóti, en líka gamaldags kistu og rólu. Þetta hljómar sakleysislega en þegar [...]

Ég er Kópavogur

2020-09-28T21:18:18+00:0026. september 2020|

Kópavogskrónika – til dóttur minnar með ást og steiktum eftir Kamillu Einarsdóttur er sennilega sérkennilegasta ástarjátning sem ég hef á ævi minni lesið. Og nú bætir Þjóðleikhúsið um betur og leyfir mér að horfa og hlusta á Krónikuna í Kassanum, í uppsetningu Silju Hauksdóttur. Leikgerðin er eftir Silju og aðalleikkonuna, Ilmi Kristjánsdóttur, og tónskáldið Auður [...]

Vormenn Íslands á 21. öld

2019-05-20T17:17:36+00:0010. mars 2015|

Herranótt Menntaskólans í Reykjavík setur nú upp leiksýningu í 170. sinn. Þau völdu 125 ára gamalt leikverk, Vorið vaknar eftir Frank Wedekind, þó ekki upprunalega leikritið heldur rokksöngleik sem Duncan Sheik og Steven Sater sömdu upp úr því á ensku laust fyrir aldamótin 2000. Tónlistin er kraftmikil og skemmtileg og flytur þetta tímalausa efni áreynslulaust [...]