Þú ert hér://Tag: Þjóðleikhúsið

Áfram stelpur

2019-03-13T15:54:37+00:004. nóvember 2018|

„Það eru ekkert færri karlar hér en á venjulegri sýningu í Tjarnarbíó,“ sagði sessunautur minn þegar hann svipaðist um í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. Þar var verið að frumsýna kabarettsýninguna „Fjallkonan fríð – eða hefur hún hátt?“ og hann hefur kannski átt von á að vera eini karlinn á svæðinu. Þó svo væri ekki voru konur [...]

Fékk hann samþykki? Eða sagði hún nei?

2019-05-27T11:18:12+00:0027. október 2018|

Eins og það er gaman að sjá stuttar og hnitmiðaðar leiksýningar og safnast saman á eftir yfir umræðum um þær þá er líka upplifun að sjá langar og íhugular leiksýningar, virkilegar „heils kvölds sýningar“ sem maður stingur sér beint í rúmið á eftir og dreymir þær alla nóttina. Þannig sýning er Samþykki, ársgamalt leikrit eftir [...]

Það komast ekki allir til tunglsins

2019-03-13T16:43:47+00:0029. september 2018|

Við eigum írska leikskáldinu Marie Jones meira að þakka en margir átta sig á. Það er vegna hennar að við fengum að sjá Stefán Karl á sviði eftir að hann var eiginlega hættur að leika vegna veikinda og sú síðasta frábæra frammistaða komst meira að segja í sjónvarpið og er til fyrir afkomendur okkar um [...]

Ræningjakóngsins dóttir – hér er hún!

2019-03-13T17:02:56+00:0016. september 2018|

Söngleikurinn um Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren, Anninu Enckell og Sebastian var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær fyrir fleytifullum sal af alveg ævintýralega fallegum, áhugasömum og stilltum börnum á öllum aldri. Endalaust fjölbreytta leikmynd, litríka búninga og heillandi lýsingu hönnuðu Finnur Arnar Arnarson, María Th. Ólafsdóttir og Ólafur Ágúst Stefánsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson [...]

Lífið séð í ljósi dauðans

2019-03-13T17:11:27+00:0015. september 2018|

Áður en ég settist við að skrifa um sýninguna Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan, sem var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, las ég viðtal við Charlotte Bøving í Fréttablaði dagsins. Þar segir hún frá sýningu sem hún er að vinna um dauðann, séðan frá lífinu. Mér fannst þetta skondið af því [...]

Viðsjáll sonnettusveigur

2019-03-14T15:50:42+00:0019. maí 2018|

Það gefst fremur nöpur innsýn í líf ungs fólks í Aðfaranótt Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem útskriftarnemar af leikarabraut LHÍ sýna í Kassanum þessar vikurnar. Ókeypis er inn á sýninguna og full ástæða til að hvetja alla – og kannski einkum ungt fólk – til að slá þarna tvær flugur í einu höggi, sjá splunkunýtt verk [...]

Mestu andstæðurnar

2019-05-27T11:24:10+00:0017. maí 2018|

Upp úr gryfjunni framan við stóra svið Þjóðleikhússins líða tregafullir tónar, sárir en blíðir, veikir í fyrstu en styrkjast. Svo eru rauðu, þungu tjöldin dregin frá og við okkur blasir eyðiland. Gráir, grýttir melar, fallin girðing, nakin tré sem teygja greinar sínar angistarfullt til himins. Mistur eftir nýafstaðna stórskotahríð myrkvar sólina. Dauðir menn liggja eins [...]

Líf að lífi loknu

2019-05-27T11:23:38+00:0028. apríl 2018|

Vestfirðir taka ekki elskulega á móti Flóru (Elva Ósk Ólafsdóttir) þegar hún kemur þangað, lífsleið og buguð, til að mála hús tengdaforeldra dóttur sinnar. Verkið er leikgerð Melkorku Teklu Ólafsdóttur á skáldsögunni Svartalogni Kristínar Marju Baldursdóttur og var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Flóra kemur gangandi til okkar í byrjun leiks eftir dimmum [...]

Bestuvinaafmæli Odds og Sigga

2019-05-27T11:23:15+00:005. mars 2018|

Ég sá í morgun leikarana og fjörkálfana Odd Júlíusson og Sigurð Þór Óskarsson halda upp á tíu ára vináttuafmæli sitt á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir fullan sal af líklega tíu ára börnum. Verkið sömdu þeir bestu vinir ásamt leikstjóra sínum, Birni Inga Hilmarssyni, og hafa verið að sýna víða um land síðan snemma í haust. [...]

Slær Slá í gegn í gegn?

2019-05-27T11:23:05+00:0025. febrúar 2018|

Lögin eru auðvitað fín, eyrnaormar sem við höfum sungið hástöfum í rúma þrjá áratugi og svo önnur minna þekkt inn á milli. Textarnir bráðskemmtilegir. Grunnhugmyndin að söngleiknum Slá í gegn eftir Guðjón Davíð Karlsson sem Þjóðleikhúsið frumsýndi á stóra sviðinu í gærkvöldi undir stjórn þess sama Góa er líka allt í lagi. Vantar þá nokkuð? [...]