Þú ert hér://Tag: Theodór Júlíusson

Niðurlæging mannsins

2019-05-08T15:08:10+00:0017. apríl 2016|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Auglýsingu ársins, fjörugt og ógnvænlegt nýtt verk eftir Tyrfing Tyrfingsson, á nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson og margslungna, síbreytilega leikmynd gerði Eva Signý Berger. Leikritið gerist á auglýsingastofu sem má muna sinn fífil fegurri. Eigandinn (Theodór Júlíusson) er meðal annars frægur fyrir auglýsinguna á nýju símanúmeri Hreyfils [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]

Lífið er leiksvið

2019-08-24T13:42:11+00:007. janúar 2012|

Leikverkið Fanný og Alexander eftir sænska kvikmyndaskáldið Ingmar Bergman var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gær undir stjórn Stefáns Baldurssonar sem einnig vann leikgerðina. Fantagóð þýðingin reyndist vera gerð af Þórarni Eldjárn og töfrafullt sviðið gerði Vytautas Narbutas. Þá voru búningarnir ekki síðri, heiðurinn af þeim á Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Þetta er sannkölluð skrautsýning en afar [...]

Kirsuberjagarðurinn verður seldur

2019-08-21T17:01:16+00:0029. október 2011|

Þær eru býsna ólíkar sýningarnar tvær sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum í gærkvöld og fyrrakvöld, en þær eiga sameiginlegt að vera unnar af fyllstu alúð og ná háum listrænum hæðum. Sýningin í gærkvöld var á stóra sviði Borgarleikhússins á Kirsuberjagarðinum, einu vinsælasta leikriti Tsjekhovs. Leikstjóri var Hilmir Snær Guðnason en þýðingin eftir Jónas Kristjánsson [...]

Heim til mömmu

2020-01-30T16:02:20+00:002. nóvember 2009|

Ég játa að ég fylgist með framhaldsþáttunum Dirty Sexy Money í Sjónvarpi allra landsmanna. Þetta er hárbeitt háð um fólkið sem mörg okkar öfunda, ríkasta fólkið í hinum vestræna heimi, sorgir þess og gleði – aðallega sorgir náttúrlega – vel skrifaðir og ágætlega leiknir, sambærilegir að ýmsu leyti við þá dásamlegu grínþætti Aðþrengdar eiginkonur. Þarna [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]