Þú ert hér://Tag: Soffía Auður Birgisdóttir

Margfeldi merkingar

2019-05-24T13:43:03+00:0014. október 2016|

Linda Vilhjálmsdóttir. Frelsi. Mál og menning, 2015. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2016 við höfum margfaldað frelsið „Frelsi“ er eitt þessara stóru orða – kannski það stærsta – sem ekki verður skilgreint í eitt skipti fyrir öll því merking þess breytist í sífellu eftir því í hvaða samhengi það er notað (og misnotað), [...]

Kynferðislegt ofbeldi: krabbamein á þjóðarlíkama

2019-05-24T16:05:08+00:0030. nóvember 2015|

Steinar Bragi. Kata. Mál og menning 2014. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2015 Þegar þessi orð eru skrifuð geisar í íslenskum blöðum og á bloggsíðum umræða um nýjar bækur íslenskra karla sem segja frá ofbeldi, andlegu og líkamlegu. Tekist er á um hugtökin sannleika og lygi, staðreyndir og skáldskap, og ýmis vanhugsuð og [...]

„Í leik með víddir og veruleika“

2019-06-13T22:03:06+00:0020. nóvember 2014|

Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir. Stúlka með maga: Skáldættarsaga. JPV útgáfa, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2014 I Margvíslegar tilraunir hafa verið gerðar innan hinnar sögulegu skáldsögu á undanförnum áratugum, kenndar við póstmódernískan leik og uppreisn gegn stöðnuðu formi. Á sama tíma hefur þetta bókmenntagervi, það er að segja skáldskapur sem staðsettur er [...]

Til varnar náttúrunni / Gegn verksmiðjuvæðingu lífsins

2019-06-14T16:00:38+00:009. desember 2013|

Ófeigur Sigurðsson. Landvættir: Skáldsaga. Mál og menning, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2013 I Ég er ekki frá því að Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar og nýrra tíma (Mál og menning 2010) eftir Ófeig Sigurðsson sé ein [...]

Hugarburður skálds

2019-06-21T10:52:51+00:0012. júní 2013|

Auður Jónsdóttir. Ósjálfrátt. Mál og menning, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2013. „Hvernig byrjar maður skáldsögu?“ spyr sögumaður í upphafi fimmta kafla Ósjálfrátt og bendir þar með á einn gildasta þáttinn í frásögn bókarinnar sem eru hugleiðingar um tilurð skáldskaparins og hlutskipti þess sem velur sér skriftir að lífsstarfi. Ósjálfrátt er einum [...]

Af hinum fáheyrðu göldrum skáldskaparins

2019-06-21T11:35:56+00:0012. mars 2013|

Einar Kárason. Skáld. Mál og menning, 2012, 235 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2013. I Með útgáfu á Skáldi, síðustu bókinni í þríleiknum um Sturlungaöldina, bindur Einar Kárason endahnút á verk sem teygir anga sína út fyrir heim skáldskaparins og inn á svið íslenskra fræða þar sem Einar endurvekur hina sígildu spurningu [...]

Landnámsmaður og útlagi

2019-06-23T23:11:09+00:0016. október 2012|

Jón Yngvi Jóhannsson. Landnám: Ævisaga Gunnars Gunnarssonar. Mál og menning, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2012 „Hver er þá margumtöluð „staða Gunnars Gunnarssonar“ í íslenskum bókmenntum?“ spyr Jón Yngvi Jóhannsson undir lok hinnar ríflega 500 blaðsíðna bókar sinnar um ævi Gunnars og verk hans. Segja má að bók Jóns Yngva sé öðru [...]

„[…] mörg eru sjálf þín, kona“

2019-06-23T23:44:34+00:0019. júní 2012|

Hallgrímur Helgason. Konan við 1000°: Herbjörg María Björnsson segir frá. JPV útgáfa, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2012 Í aðfararorðum að bókinni Konan við 1000° tekur höfundur verksins fram að um sé að ræða skáldsögu þótt hún „byggist að nokkru leyti á atburðum sem gerðust og fólki sem lifði og dó“. Hann [...]

Að grafa leynigöng milli veruleika og drauma

2019-06-28T12:08:20+00:001. mars 2012|

Eiríkur Guðmundsson. Sýrópsmáninn. Bjartur, 2010, 232 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Eiríkur Guðmundsson lýsti skáldsögu sinni Sýrópsmánanum sem „tilfinningalegri rannsóknarskýrslu“ í viðtali við Morgunblaðið 10. nóvember 2010. Lýsingin kallar fram ýmis konar hugrenningatengsl, en fyrst og fremst við hina frægu Rannsóknarskýrslu Alþingis eins og til var ætlast. Skýrslan sú var gefin [...]

Skrásetjarar með „combinationsgáfu“

2019-10-17T16:13:49+00:0028. september 2011|

Sigrún Pálsdóttir. Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar 1847–1917. Reykjavík: JPV útgáfa, 2010. Úr Tímaritit Máls og menningar 3. hefti 2011   „Hvort er nú meira spennandi hér, sannleikur eða uppspuni?“ Á þessari spurningu lýkur stuttri en leyndardómsfullri frásögn sem stendur eins og nokkurs konar formáli að bók Sigrúnar Pálsdóttur, Þóra biskups og raunir íslenskrar [...]