Þú ert hér://Tag: Snorri Wium

Þegar menningarheimar rekast á

2023-03-06T09:10:10+00:005. mars 2023|

Íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi vinsæla óperu Puccinis frá 1904, Madama Butterfly, með kóresku sópransöngkonunni Hye-Youn Lee í aðalhlutverki. Leikstjórinn Michiel Dijkema gerði einnig leikmyndina sem var eins og klassísk smámynd frá Japan í gamla daga með hænsnastiga og bonsai-tré og allt. Hljómsveitarstjóri var Levente Török, Magnús Ragnarsson stjórnaði kórnum, María Th. Ólafsdóttir skapaði öllum [...]

Stjarna fædd

2019-03-18T13:29:53+00:0010. mars 2019|

Það mega landar mínir eiga að þeir vita hvenær þeir verða vitni að listrænum stórviðburði. Í lok frumsýningar í Íslensku óperunni í gærkvöldi var hverjum hópnum af öðrum fagnað vel og innilega: dönsurum, fjölmennum Kór Íslensku óperunnar, einsöngvurum. Hrólfur Sæmundsson (Giorgio Germont) fékk innilegt lófatak þegar hann gekk inn þriðji síðastur. Næstur kom Elmar Gilbertsson [...]

Tálkvendið og hermaðurinn

2019-06-12T14:20:17+00:0020. október 2013|

Önnur gamalkunn saga var frumsýnd í óperuformi í Eldborg Hörpu í gærkvöldi, Carmen eftir Georges Bizet sem frumflutt var í París 1875 – við lítinn fögnuð almennra áheyrenda, skilst mér. Fólki fannst ástæðulaust að setja svona pakk á svið – verkalýð, portkonur og hermenn. Síðan hefur þetta orðið ein allra vinsælasta ópera í heimi og [...]

Fyrsta óperan í Hörpu

2019-08-23T14:09:47+00:0023. október 2011|

Það var gífurleg stemning í Hörpu á laugardagskvöldið: fullt í öllum sölum og þúsundir í húsinu. Þar að auki var verið að frumsýna fyrstu óperuna í Eldborg og mikil ánægja með þann áfanga. Menn óskuðu hver öðrum til hamingju með daginn eða buðu gleðilega hátíð. Óperan var sú gamalkunna Töfraflauta Mozarts, dýrlegt músíkstykki með nokkrum [...]