Þú ert hér://Tag: Símon Birgisson

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-03T15:35:54+00:007. janúar 2017|

Eins og sjálfsagt flestar konur hef ég reynslu af karlmönnum eins og Sölva (Stefán Hallur Stefánsson) í leikritinu Gott fólk sem frumsýnt var í Kassanum í gærkvöldi (ég sá aðalæfingu kvöldið áður). Þetta er gasalega sætur strákur, orðheppinn og skemmtilegur, heillandi við fyrstu kynni, en þessir kostir valda því að hann er tregur til að [...]

Heimilisólukka enn

2019-05-16T16:43:49+00:006. september 2015|

„Er til meiri klisja?“ spyr Símon Birgisson dramatúrg í leikskrá Móðurharðindanna eftir Björn Hlyn Haraldsson sem voru frumsýnd í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Hann er að meina efni verksins, uppgjör í fjölskyldu eftir að heimilisfaðirinn deyr. Þessi orð Símonar eiga ekki síst vel við af því að eitt síðasta verkið á fjölum Reykjavíkurleikhúsa í vor [...]

Leiðin til Rómar

2019-05-27T13:01:24+00:0018. október 2014|

Ekki get ég neitað því að ég kveið ofurlítið fyrir að sjá á sviði leikgerðina af Karítas, tveggja binda skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. Verkið er mikil epík, það segir svo langa sögu, teygir sig yfir heila öld, fer svo víða og segir frá svo mörgum persónum að það virtist óðs manns æði að gera því [...]

Að lifa stríð

2019-05-27T13:35:19+00:0028. september 2014|

Ég hef verið stór aðdáandi Konunnar við 1000° síðan ég las hana nýútkomna en ekki bjóst ég við að hún myndi þola að fara á svið. Tíu tíma sjónvarpssería kannski eða að minnsta kosti ílöng tveggja kvölda leiksýning eins og Heimsljós og Sjálfstætt fólk en ekki eitt tveggja tíma leikrit. Þetta hefur þó verið gert. [...]

Saga skjótta hestsins

2019-06-12T15:52:15+00:0021. apríl 2013|

Sjaldan hef ég á langri leikhúsævi séð leikara „taka salinn“ eins og Atli Rafn Sigurðarson gerði í gær á frumsýningu Engla alheimsins á stóra sviði Þjóðleikhússins. Ekki aðeins ávarpa salinn og gera hann að trúnaðarmanni sínum heldur stjórna honum eins og stórum kór eða sinfóníuhljómsveit. Enda „átti“ Atli Rafn sviðið alla sýninguna út í gegn [...]

„Leikur hlæjandi láns“

2019-06-15T15:03:05+00:0027. mars 2013|

Í Tjarnarbíó má nú fylgjast með tveim stúlkum úr Hreyfiþróunarsamsteypunni, Katrínu Gunnarsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, dansa eigið sköpunarverk sem þær kalla Coming Up. Myndin á prógramminu sýnir tvær stelpur rekast saman í háu stökki, þær eru í dæmigerðum fatnaði stelpna á aldrinum 7-11 ára, buxum og peysum, ekkert „fínar“, hvað þá „dansmeyjarlegar“. Þannig eru [...]