Þú ert hér://Tag: Sigurður Pálsson

Til minnis

2021-07-30T10:13:26+00:0030. júlí 2021|

Sigurður Pálsson Eftir Arndísi Þórarinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2017     Sjónin er pabbinn en heyrnin er mamman, sagði Sigurður Pálsson í fyrsta tímanum og hvessti augun á hópinn. Auðvitað hreyfði enginn andmælum þó að fæstir botnuðu nokkuð í fullyrðingunni. Andrúmsloftið í stofunni var eins og í helgidómi, við [...]

Ljóð eru alltaf í uppreisn

2019-09-20T11:19:02+00:0027. september 2017|

Viðtal Silju Aðalsteinsdóttur við Sigurð Pálsson Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2006 Sigurður Pálsson er einn þekktasti og afkastamesti starfandi rithöfundur á landinu. Hann var hluti af hinni öflugu ljóðbylgju á miðjum áttunda áratug síðustu aldar og vinnur nú að þrettándu ljóðabók sinni sem væntanleg er í haust. Auk þess hefur hann sent [...]

Bandarísk rökkurópera

2019-05-06T16:03:20+00:001. október 2016|

Hún var þrungin þögnin í stóra sal Þjóðleikhússins í gærkvöldi á frumsýningu Horft frá brúnni, og varði þá nærri tvo tíma sem sýningin stóð, án hlés. Einn og einn hósti heyrðist óþægilega vel og sömuleiðis suð í lágt stilltum farsíma, annars var þögnin djúp allan tímann. Þetta varð smám saman alveg magnað. Horft frá brúnni [...]

„Nóttin er til þess að gráta í“

2019-05-20T13:36:43+00:0023. mars 2015|

Við sáum loksins Segulsvið Sigurðar Pálssonar í gærkvöldi í Kassa Þjóðleikhússins, undrafagra sýningu þar sem hvað styður annað: margslungið leiksvið Gretars Reynissonar, táknvísir búningar Þórunnar Maríu Jónsdóttur, snjöll lýsing og ævintýraleg myndbandshönnun Halldórs Arnar Óskarssonar og Magnúsar Arnars Sigurðarsonar og skemmtileg hljóðmynd Úlfs Eldjárn og Kristjáns Sigmundar Einarssonar. Öllu haldið saman af óbrigðulum smekk leikstjórans, [...]

Uppreisn gegn afhelgunarskyldunni

2019-06-21T12:19:04+00:0012. desember 2012|

Sigurður Pálsson. Ljóðorkusvið, Ljóðorkuþörf, Ljóðorkulind. JPV útgáfa, 2006, 2009, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2012 Hin dulda merking Í heimi þar sem fólk er stöðugt að leita að hughreystingu, vill efla sig og styrkja, til dæmis með hjálp fæðubótarefna, rétts mataræðis, jóga, líkamsræktar og lífsspekirita ýmiskonar, er ekki ólíklegt að sú spurning [...]

„Skáldskapur er ofsafengin leit að sannleikanum“

2019-06-23T23:06:45+00:0016. október 2012|

Sigurður Pálsson. Bernskubók. JPV útgáfa, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2012 Leit, angist, framandleiki, útskúfun, sársauki, ráf og órói eru sterk leiðarstef í fyrstu ljóðabókum Sigurðar Pálssonar en eftir því sem bókunum fjölgar verða fögnuður og fegurð fyrirferðarmeiri. Angistin og lífsháskinn víkja hægt og sígandi fyrir óþrjótandi lífsgleði og æðruleysi. Þar með [...]

Hinn eiflífi maður

2019-04-03T15:10:15+00:002. nóvember 2008|

Nýtt verk Sigurðar Pálssonar, Utan gátta, sem er sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu, hefur fengið virkilega fín viðbrögð gagnrýnenda eins og það á skilið. Þetta er dásamlegt verk, fyndið og furðulegt en sýnir okkur samt ofan í regindjúp mannlegrar reynslu, án þess að rembast nokkurn tíma. Að óreyndu hefði ég ekki ímyndað mér að hægt væri [...]

Pílagrímsferð til Parísar

2019-05-10T11:13:46+00:002. maí 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2008 Eina fermingargjöfin mín sem enn er í notkun er bókin Íslenskir pennar – sýnisbók íslenskra smásagna á tuttugustu öld sem Setberg gaf út 1956. Hún var mikill happafengur. Strax fjórtán ára kynntist ég mörgum helstu höfundum þjóðarinnar, meðal annars ungliðunum Thor Vilhjálmssyni, Indriða G. [...]