Þú ert hér://Tag: Sigrún Edda Björnsdóttir

Gott svar

2019-06-19T12:34:19+00:0030. apríl 2012|

Sýning Leikfélags Reykjavíkur á Svari við bréfi Helgu er sérkennileg upplifun – enda er grunnurinn strangt til tekið ekki leikrit heldur bréf sem maður er að skrifa og kafar á meðan niður í djúp minninganna. Þetta gerir óvenjulegar kröfur til Snorra Freys Hilmarssonar leikmyndahönnuðar og hann tekur þá djörfu ákvörðun að ganga út frá vatni. [...]

Kirsuberjagarðurinn verður seldur

2019-08-21T17:01:16+00:0029. október 2011|

Þær eru býsna ólíkar sýningarnar tvær sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum í gærkvöld og fyrrakvöld, en þær eiga sameiginlegt að vera unnar af fyllstu alúð og ná háum listrænum hæðum. Sýningin í gærkvöld var á stóra sviði Borgarleikhússins á Kirsuberjagarðinum, einu vinsælasta leikriti Tsjekhovs. Leikstjóri var Hilmir Snær Guðnason en þýðingin eftir Jónas Kristjánsson [...]

Efnið sem draumar spinnast úr

2019-08-24T14:54:11+00:0030. desember 2010|

Þær eru ekki líkar Shakespeare-sýningarnar sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum milli jóla og nýjárs. Eiginlega eru þær algerar andstæður. Sú ástralska í Þjóðleikhúsinu er dökk og dimm með „ekta” ofsaveðri og stórrigningu, sú litháíska í Borgarleikhúsinu litrík og björt með gamaldags rokvélum á sviðinu til að framkalla ofviðrið sem hún heitir eftir. Í Þjóðleikhúsinu [...]

Að vera eða ekki vera – þar er efinn

2019-09-05T22:10:22+00:0013. október 2010|

Ekki hef ég lengi séð eins vel heppnaða leikgerð skáldsögu á sviði og Fólkið í kjallaranum sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina. Það sem gerði útslagið í leiktexta Ólafs Egils Egilssonar var hve mikið af auði sögunnar komst upp á sviðið, hve mörg atvik og hve mikið af togstreitunni og þjáningu efans sem þjakar aðalpersónuna. Þetta [...]

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]

Heim til mömmu

2020-01-30T16:02:20+00:002. nóvember 2009|

Ég játa að ég fylgist með framhaldsþáttunum Dirty Sexy Money í Sjónvarpi allra landsmanna. Þetta er hárbeitt háð um fólkið sem mörg okkar öfunda, ríkasta fólkið í hinum vestræna heimi, sorgir þess og gleði – aðallega sorgir náttúrlega – vel skrifaðir og ágætlega leiknir, sambærilegir að ýmsu leyti við þá dásamlegu grínþætti Aðþrengdar eiginkonur. Þarna [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]