Þú ert hér://Tag: Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

Hjartsláttur leikhússins

2026-09-28T12:53:42+00:0028. september 2026|

Leikhópurinn Baksviðs frumsýndi í gær í Tjarnarbíó Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu eftir Vigdísi Gunnarsdóttur. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir sem líka leikur í sýningunni. Sviðsmynd og búninga hannaði Rebekka A. Ingimundardóttir en lýsinguna Fjölnir Gíslason og tónlist og leikhljóð skapaði Íris Thorarins. Við förum í leikhús til að sjá fullbúna leiksýningu en í Heimsókninni í [...]

Ennþá gerast ævintýr

2026-07-12T15:43:26+00:0011. júlí 2026|

Afturámóti frumsýndi í gærkvöldi í Háskólabíó ævintýraleikinn Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks eftir Einar Baldvin Brimar. Leikstjóri er Egill Andrason og hann annaðist líka tónlistarstjórn og hljóðhönnun; Helga Brá Brimar hannaði fjölda ævintýralegra búninga en María Jóngerð Gunnlaugsdóttir hannaði lýsingu. Í þennan ástardrykk blandar höfundur saman efni úr hinum ólíklegustu áttum: ævintýrum, riddarasögum, óperum og arabískum nóttum [...]

Lífið er, karl minn, kabarett

2026-04-20T12:00:02+00:0020. apríl 2026|

Leikhús ókunnuga fólksins sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið söngleikinn Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann var frumsýndur 20.mars en vegna þess að ég komst ekki þá þurfti ég að bíða þangað til í gær með að sjá sýninguna, svo gríðarlega vinsæl er hún. Verkið byggir á Berlínarsögum Christophers Isherwood sem urðu leikrit í höndum Johns van [...]

Fjöruleikir

2024-01-14T16:28:50+00:0014. janúar 2024|

Leikfélagið Reine Mer frumsýndi í dag látbragðsleikinn og hálfgrímusýninguna Ég heiti Steinn  í Tjarnarbíó. Höfundur er Lucas Rastoll-Mamalia sem einnig leikstýrir og gerir myndbönd; skemmtilegar grímurnar eru eftir Francescu Lombardi, lýsingu hannar Juliette Louste og Sacha Bernardson sér um tónlistina. Sýningin er orðlaus en leikararnir gefa frá sér mjög skiljanleg hljóð! Steinn litli (Lucas Rastoll-Mamalia) [...]

Fátt að frétta úr hulduheimum

2023-06-21T13:40:11+00:003. júní 2023|

Bláir englar frumsýndu í gærkvöldi í samstarfi við Tjarnarbíó einleikinn Hulið eftir Sigríði Ástu Olgeirsdóttur með elegant tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Sigríður Ásta leikur sjálf en leikstjóri hennar er Halldóra Rósa Björnsdóttir. Leikmyndina unnu þær saman, leikstjórinn og leikarinn, hún er mjög dökk fyrir utan ljósa steinhnullunga á gólfinu og búningur Sigríðar Ástu, afar smekkleg [...]