Þú ert hér://Tag: Sara Martí Guðmundsdóttir

„Ég ætla bara …“

2025-09-29T11:10:27+00:0029. september 2025|

Einar Áskell er vinur margra kynslóða Íslendinga, enda er þetta góður drengur og tiltölulega þægur og eftirlátur við pabba sinn þó að hann þurfi stundum „bara aðeins …“ áður en hann gerir það sem fyrir hann er lagt. Ný sýning um piltinn, Engan asa, Einar Áskell, var frumsýnd í Kaldalóni Hörpu í gær, unnin upp [...]

Mannabörn, tröllabörn og ofurbörn

2022-03-23T12:58:00+00:0020. mars 2022|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í kjallara Kassans barnaleikritið Umskipting eftir Sigrúnu Eldjárn undir stjórn Söru Martí Guðmundsdóttur. Þar hafði Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður snúið öllu á langveginn þannig að sviðið varð ógnarlangur klettaveggur með fosssprænum úr ljósi og hentugum mosagrónum syllum sem mátti leggjast í og klifra eftir. Þetta var bæði fallegt og bauð upp [...]

Hvað kemur með?

2020-09-07T21:55:19+00:005. september 2020|

Oft hef ég velt því fyrir mér á langri ævi hvað ég myndi hafa með mér ef ég þyrfti skyndilega að flýja að heiman vegna hamfara af einhverju tagi. Valið yrði sjálfsagt erfiðara hjá mér en Alex (Kjartan Darri Kristjánsson / Óðinn Benjamín Munthe), söguhetju barnaleikritsins Tréð eftir Söru Martí Guðmundsdóttur og Agnesi Wild sem [...]

Gætið að gleðinni

2019-12-05T14:05:33+00:002. desember 2019|

Leikhópurinn Miðnætti sem hefur glatt íslensk börn undanfarin ár (og er nú að teygja sig til barna annarra landa) frumsýndi í gær Jólaævintýri Þorra og Þuru í Tjarnarbíó. Handritið er eftir Agnesi Wild og Sigrúnu Harðardóttur sem einnig semja tónlistina og leika titilhlutverkin, en Sara Marti Guðmundsdóttir leikstýrir. Álfastúlkan Þura (Sigrún) er í heimsókn hjá [...]

„Glundroðamaskína í fjölkynja líkama“

2019-05-08T10:39:17+00:0015. mars 2018|

Óskabörn ógæfunnar frumsýndu í gærkvöldi leikritið Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl, verk sem hefur verið kynnt á nýstárlegan hátt með eintómum neikvæðum (en einkar skemmtilega orðuðum) lýsingum. Maður kveið eiginlega fyrir að hlusta á textann af ótta við að hlustum manns yrði misboðið á hverri mínútu. Það gerðist ekki og þá er spurningin hvort [...]

Í fréttum var þetta helst

2019-06-19T11:49:28+00:0018. október 2012|

Þau kalla sig VaVaVoom, myndrænt leikhús með bækistöðvar í London og Reykjavík, og í kvöld frumsýndu þau í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu brúðuleikhúsverkið Nýjustu fréttir eftir Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Söru Martí Guðmundsdóttur sem líka leikstýrir, og leikhópinn allan. Þetta er orðalaust verk að heita má, að vísu heyrum við orðaflaum á mörgum tungumálum úr útvarpi og [...]

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt [...]

Var Hollywood í Ármúlanum?

2020-01-31T16:42:33+00:002. maí 2008|

Ég vaknaði í morgun með lokasönginn í hausnum: “Ástin er diskó – lífið er pönk”. Kannski verður það smellur. En hápunktur kvöldsins fyrir mig var síðasta lag fyrir hlé, “Hiroshima” eftir Bubba Morthens, sem Nonni rokk (Þórir Sæmundsson) flutti af miklum krafti og reyndar frábærlega vel. Jafnaðist ekki á við höfundinn (hver gerir það?) en [...]