Þú ert hér://Tag: Salka Valsdóttir

Vitið þér enn – eða hvað?

2024-01-09T09:22:06+00:0027. desember 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikverkið Eddu eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur, Jón Magnús Arnarsson og Þorleif Örn Arnarsson sem einnig var leikstjóri sýningarinnar. Leikmyndina með sínum stílfærða Aski Yggdrasils fyrir miðju hannaði Vytautas Narbutas. Áheyrileg tónlist og flókin hljóðhönnun var í höndum Sölku Valsdóttur, Egils Andrasonar og Arons Þórs Arnarssonar en Salka var tónlistarstjóri. Karen Briem [...]

Myrkviði mannssálarinnar

2023-05-15T12:25:41+00:0024. apríl 2023|

  Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi um helgina Svartþröst eftir Skotann David Harrower á Litla sviði Borgarleikhússins. Vignir Rafn Valþórsson bæði þýðir og leikstýrir enda er hann kunnugur verkum af þessu tagi ­ – erfiðum, afhjúpandi verkum sem ganga nærri persónum sínum, leikurum og áhorfendum. Ég minnist sýninga hans á Munaðarlaus, Bláskjá, Hans Blæ, Illsku, Refnum og [...]

Sannleikurinn er sagna verstur

2022-05-17T10:19:41+00:0010. apríl 2022|

Leikfélag Reykjavíkur og CommonNonsense frumsýndu í gær samtímafarsann Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson á Nýja sviði Borgarleikhússins. Breiða pallastofu með hringstiga innst upp á efri hæðir skapar Ilmur Stefánsdóttir og hún sér líka um í bland dálítið fríkaða búninga og leikgervi (með Elínu S. Gísladóttur); til dæmis þekkti ég ekki Þórunni Örnu Kristjánsdóttur fyrr en [...]

„Vellandi hatur, svellandi ást“

2021-09-06T11:04:14+00:005. september 2021|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi eftir æðilanga bið leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Þorleifur leikstýrir líka en dramatúrg er Hrafnhildur Hagalín. Einföld en lúmsk leikmyndin er Ilmar Stefánsdóttur, myndband er á vegum Nönnu MBS og Signýjar Rósar Ólafsdóttur en rosalegt búningafylliríið er verk Önnu Rúnar Tryggvadóttur og Urðar Hákonardóttur. Flókna [...]

„Orðspor never dies“

2021-03-25T10:18:54+00:0012. mars 2021|

Það verður ekki frýnilegt lífið eftir hrun siðmenningarinnar ef marka má verk Kolfinnu Nikulásdóttur, The last kvöldmáltíð. Það var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum leikhópsins Hamfara undir stjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Þar hittum við síðustu eftirlifendurna í óræðri framtíð, eins konar fjölskyldu, pabba, mömmu, stúlku og tvo drengi (skyldleikinn er óljós), sem hafa [...]