Þú ert hér://Tag: Ragnheiður Steindórsdóttir

Geturðu fyrirgefið?

2019-06-12T11:04:46+00:0015. febrúar 2014|

Málamyndahópurinn rannsakar eðli fyrirgefningar í mannlegu samfélagi í leikverki Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Fyrirgefðu ehf, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn höfundar. Sviðið er eftir Rebekku A. Ingimundardóttur, einfalt og snjallt, og leikur vel með ljósum Arnars Ingvarssonar. Í verkinu bregða fjórir leikarar sér í fjölmörg hlutverk starfsmanna og skjólstæðinga fyrirtækisins Fyrirgefðu ehf [...]

Sálarflækjur

2019-06-18T12:13:33+00:0014. febrúar 2013|

Það mætti halda að Hávar Sigurjónsson hefði lesið yfir sig í sálfræðiritum af ýmsu tagi meðan hann var að skrifa leikritið Segðu mér satt sem leikfélagið Geirfugl sýnir nú í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Heiðars Sumarliðasonar. Þær voru allnokkrar sálarflækjurnar sem lesa mátti út úr hegðun fólksins á sviðinu og sumar illviðráðanlegar. Að sjálfsögðu [...]

Jebbs

2020-01-30T11:51:37+00:0014. mars 2010|

Fíasól er flutt í Kúlu Þjóðleikhússins og þangað geta krakkar heimsótt hana. Hún er nefnilega að ná sér eftir flensuna og getur ekki komið út að leika. En við megum vel koma inn til hennar og sjá hana leika sér í hosiló við Ingólf Gauk og Pippu systur. Ég býst við að einhverjum ungum leikhúsgesti [...]

Glæpasaga úr Hlíðunum

2020-01-30T11:55:58+00:0028. febrúar 2010|

Það sem Bragi Ólafsson gerir svo snilldarlega í verkum sínum, skáldsögum og leikritum, er að leiða mann inn í aðstæður sem eru raunsæjar og eðlilegar og vinna með þær, á máta sem freistandi er að kalla ofur-raunsæjan, þangað til þær verða óbærilegar. Um leið og viðtakandi hlær geðveikislega fer honum að líða illa; hann fer [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]

Ég elska hana, hún elskar annan mann

2020-01-31T15:44:55+00:0015. mars 2009|

Þrettándakvöld er eitt alskemmtilegasta leikrit Vilhjálms Shakespeare, hryllilega fyndið og fyndnin þar að auki af mörgum tegundum. Þar ber erótíska fyndni hæst en líka er meinleg fyndni áberandi, misskilningsfyndni, kynusli eins og hann gerist fyndnastur hjá þessum yndislega höfundi og svona mætti lengi halda áfram að telja. Þetta verk hefur maður séð í mörgum uppsetningum og [...]

Var Hollywood í Ármúlanum?

2020-01-31T16:42:33+00:002. maí 2008|

Ég vaknaði í morgun með lokasönginn í hausnum: “Ástin er diskó – lífið er pönk”. Kannski verður það smellur. En hápunktur kvöldsins fyrir mig var síðasta lag fyrir hlé, “Hiroshima” eftir Bubba Morthens, sem Nonni rokk (Þórir Sæmundsson) flutti af miklum krafti og reyndar frábærlega vel. Jafnaðist ekki á við höfundinn (hver gerir það?) en [...]