Þú ert hér://Tag: Pétur Ármannsson

Það sem dalurinn geymir

2020-10-08T14:02:34+00:005. október 2020|

Eins og í verðlaunaverkinu Club Romantica í fyrra stígur Friðgeir Einarsson fram í eigin nafni í Útlendingnum – Morðgátu, sem var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins sl. föstudagskvöld, og leiðir okkur inn í eigin sögu. Hann þarf að flytja til Bergen í Noregi vegna þess að konan hans hefur fundið nám við sitt hæfi í [...]

Nóbelsskáld deyr

2019-10-20T11:50:06+00:0020. október 2019|

Björn Leó Brynjarsson hefur verið leikskáld Borgarleikhússins undanfarið ár og í gærkvöldi sá ég afraksturinn, Stórskáldið á Nýja sviði undir stjórn Péturs Ármannssonar. Mér er enn furðu ferskur í minni einleikurinn Frami eftir Björn Leó sem var sýndur í Tjarnarbíó fyrir fjórum árum þannig að væntingarnar voru talsverðar. Þær minnkuðu ekki við geysilega viðamikið (bókstaflega, [...]

Inspired by Iceland?

2019-09-16T09:12:41+00:0014. september 2019|

Independent Party People / Mynd : Owen Fiene Þau gera grimmt en hollt gys að löndum sínum og sjálfum sér, ungu Sálufélagarnir í verki sínu Independent Party People í Tjarnarbíó (sem er að mestu leikið á íslensku þótt enskan sé annað tungumál verksins). Stofnendur hópsins og forsprakkar sýningarinnar eru þær Nína Hjálmarsdóttir sviðshöfundur [...]

Pabbi minn er kona

2019-05-03T15:09:46+00:0014. janúar 2017|

Hannes Óli Ágústsson sýnir dirfsku með því að stíga fram og segja sögu sína og föður síns á Litla sviði Borgarleikhússins í sýningunni Hún pabbi. Þetta er einlæg og lágstemmd sýning eins og hæfir því viðkvæma efni sem hún fjallar um. Hannes Óli var um tvítugt þegar hann sá óvart mynd í heimilistölvunni sem var [...]

Leikur að steinum

2019-05-10T15:08:43+00:0031. október 2015|

Við fórum loksins að sjá Petru, sýningu hópsins Dansaðu fyrir mig, í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Sá sem hefur séð fyrri sýningu hópsins, sem heitir einmitt Dansaðu fyrir mig, veit að það þarf að koma í leikhúsið með ákveðið hugarfar. Ekki búast við neinu sem flokkast undir venjulegt eða hefðbundið. Hópurinn vinnur á einhverjum mörkum veruleika [...]

Listamaðurinn býr enn í helli sínum

2019-05-16T15:56:56+00:0018. september 2015|

Kolbeinn Arnbjörnsson skapar flókinn en þó heillegan og trúverðugan karakter í einleiknum Frama eftir Björn Leó Brynjarsson sem frumsýndur var á Lókal og Reykjavík Dance Festival en er nú sýndur í Tjarnarbíó á vegum hópsins TAKATAKA. Björn Leó leikstýrir sjálfur og sér líka um tónlistina í sýningunni en sér til aðstoðar við sviðsetninguna hefur hann [...]

Skapandi helgi

2019-06-04T08:36:43+00:004. mars 2014|

Síðasta helgi var óvenju annasöm. Eins og fram hefur komið hér á vefnum sá ég bæði Svanir skilja ekki í Þjóðleikhúsinu OG Ragnheiði í Íslensku óperunni en það var ekki allt og sumt. Á fimmtudagskvöldið tók ég þátt í ævintýralegri tilraun Gjörningaklúbbsins í Listasafni Íslands, horfðist i augu við bláókunnugan mann í klukkutíma, að mér [...]

Veruleikur

2019-06-12T12:21:28+00:0018. nóvember 2013|

Á mektarárum fringe-leikhúsanna á áttunda áratugnum í London var maður sífellt á leiksýningum á einhverjum fáránlegum stöðum og þess minntist ég í gærkvöldi  þegar ég var í hópi fólks að leita að Dansverkstæðinu við Skúlagötu, príla upp og niður stiga og inn og út eftir ranghölum sem ekki leiddu neitt. Loks voru réttar útidyr opnaðar [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]