Þú ert hér://Tag: Ófeigur Sigurðsson

Brot úr Skrípinu

2024-11-15T14:44:14+00:0015. nóvember 2024|

Eftir Ófeig Sigurðsson Brot úr skáldsögunni Skrípinu. Mál og menning gefur út. Formáli Mörg vitni voru að draugaganginum eða sjónhverfingunum sem áttu sér stað í Eldborgarsal Hörpu þann 14da febrúar árið 2020, þar sem aðalpersóna þessarar bókar stóð fyrir afar óvenjulegum gjörningi. Sem handhafi áskriftarkorts hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands var ég í salnum þetta kvöld, þó [...]

Brot úr Far heimur, far sæll

2023-11-28T12:06:48+00:0028. nóvember 2023|

eftir Ófeig Sigurðsson Brot úr skáldsögunni Far heimur, far sæll. Mál og menning gefur út.                       HÉR ERU ENGIR jöklar og engin fjöll. Hér eru engir dalir og hvorki holt né hæðir. Hér er enginn skógur. Höfðar eru hér hvergi eða múlar. Hvorki finnast hér [...]

Allt í einni sögu en þó fyrst og fremst hún sjálf eða … að komast í skjól frá veröldinni og brjótast út úr því

2019-11-13T16:23:52+00:0019. nóvember 2019|

Ófeigur Sigurðsson. Heklugjá. Mál og menning 2018. 413 bls. Heklugjá Ófeigs Sigurðssonar er mikil bók að vöxtum og ber undirtitilinn „Leiðarvísir að eldinum“, sem ásamt kápumyndinni af símynstruðum hvirfli í miseldrauðum litum, gefur tilvonandi lesanda til kynna að hér sé fjallað um náttúruöfl, um frumefnið eldinn sem eyðir og skapar í sömu svipan, að minnsta [...]

Allt heitir einhverntímann eitthvað annað

2019-05-24T16:25:54+00:0014. september 2015|

Ófeigur Sigurðsson. Öræfi. Mál og menning, 2014. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2015 Sérhæfingin óendanlega er vangæf skepna og næsta viðsjárverð tilhneiging í allri þekkingarsköpun. Þegar hana skortir heyrast brigsl um ónákvæmni en gerist hún of ríkuleg má búast við að orðið „rörsýn“ beri á góma. Í samhengi skáldskapar má leggja þessa þversögn [...]

„Það sem drífur mig áfram eru uppgötvanir …“

2019-04-03T15:22:41+00:005. desember 2014|

Stefnumót við Ófeig Sigurðsson Eftir Hauk Ingvarsson Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2011 Fyrir síðustu jól kom út skáldsaga með löngum en lýsandi titli; Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar og nýrra tíma (Mál og menning 2010). [...]

Til varnar náttúrunni / Gegn verksmiðjuvæðingu lífsins

2019-06-14T16:00:38+00:009. desember 2013|

Ófeigur Sigurðsson. Landvættir: Skáldsaga. Mál og menning, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2013 I Ég er ekki frá því að Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar og nýrra tíma (Mál og menning 2010) eftir Ófeig Sigurðsson sé ein [...]

Á líðandi stund

2019-05-10T11:12:30+00:0016. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008 Mér hefur alltaf fundist Grænland minna en Ísland – óljós hvít klessa fyrir ofan stórt hvítdoppótt Ísland. En reyndar hef ég aldrei velt fyrir mér stærðarmun landanna fyrr en í september síðastliðnum. Þá var haldin í bænum Qaqortoq á suð-vestur Grænlandi, þar sem hét [...]