Þú ert hér://Tag: Melkorka Tekla Ólafsdóttir

Jól í hundrað ár

2024-11-15T14:25:37+00:0015. nóvember 2024|

Það er erfitt að muna það fyrir víst en tilfinning mín er sú að „nýja“ Jólaboðið, sem var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi, sé hressara, hraðara og fyndnara en Jólaboðið fyrir þrem árum en hins vegar ekki eins dramatískt. Það yrði ekki auðvelt að rökstyðja þetta mat; þó mætti benda á að persónan [...]

Kynslóðir koma, kynslóðir fara

2021-11-23T10:14:27+00:0020. nóvember 2021|

Jólaboðið er virkilega athyglisvert og skemmtilegt verk sem þau Gísli Örn Garðarsson og Melkorka Tekla Ólafsdóttir hafa kokkað upp úr tveim erlendum verkum, öðru dönsku en hinu bandarísku, og frumsýndu í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi við hlátrasköll. Gísli Örn leikstýrir og leikgleðin er sprúðlandi frá upphafi til enda. Dramatúrg er Melkorka Tekla. Leikritið gerist á [...]

Líf að lífi loknu

2019-05-27T11:23:38+00:0028. apríl 2018|

Vestfirðir taka ekki elskulega á móti Flóru (Elva Ósk Ólafsdóttir) þegar hún kemur þangað, lífsleið og buguð, til að mála hús tengdaforeldra dóttur sinnar. Verkið er leikgerð Melkorku Teklu Ólafsdóttur á skáldsögunni Svartalogni Kristínar Marju Baldursdóttur og var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Flóra kemur gangandi til okkar í byrjun leiks eftir dimmum [...]

„Mér endist ekki ævin til að syrgja þig …“

2019-04-30T15:36:01+00:001. apríl 2017|

Steinunn Sigurðardóttir er talsmaður ástarsorgarinnar í íslenskum bókmenntum. Í sögum og ljóðum hyllir hún þessa margræðu tilfinningu af slíkri snilld að lesandinn þráir um sinn ekkert heitar en fá að upplifa hana sjálfur. Og þó er þetta í grunninn eyðandi og banvæn kennd eins og Steinunn sýnir hvergi betur en í skáldsögunni Tímaþjófnum sem nú [...]

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið [...]

Hvenær verður vani vandi?

2020-01-31T14:54:57+00:003. október 2009|

Pör sem eru að hefja sambúð eða búin að búa saman um skeið gætu haft gagn af að sjá sýningu Venjulegs fólks í Hafnarfjarðarleikhúsinu á verki Kristjáns Þórðar Hrafnssonar, Fyrir framan annað fólk. Það var frumsýnt í gærkvöldi undir stjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur og bregður ljósi á sambúðarvanda sem getur verið erfitt – eða “asnalegt” [...]