Þú ert hér://Tag: María Ólafsdóttir

Sitthvað er Vanda og Wanda

2023-02-08T16:18:25+00:003. febrúar 2023|

Eiginlega er merkilegt að leikrit eftir David Ives skuli ekki hafa rekið á fjörur mínar fyrr en í gærkvöldi, svo vinsæll og verðlaunaður er hann í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. Það er bæði snjallt og djarft af Eddu Björgu Eyjólfsdóttur að velja eitt hans umtalaðasta verk, Venus í feldi, til að setja upp hér á landi [...]

Skilaboðaskjóðan skilar sínu

2019-05-03T14:09:33+00:0029. janúar 2017|

Takið nú eftir, áhugamenn um úrvals barnasýningar: Leikfélag Mosfellssveitar og leikfélagið Miðnætti eru að sýna Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson alla sunnudaga næstu vikur. Þetta er eldfjörug sýning og falleg ásýndum enda sama fólk sem að henni stendur og minnisstæðri verðlaunauppsetningu á Ronju ræningjadóttur 2014, leikstjórinn Agnes Wild, tónlistarstjórinn Sigrún Harðardóttir sem [...]

Megafjör í Mosfellsbæ

2019-05-22T14:07:24+00:0020. október 2014|

Leikfélag Mosfellsbæjar er að sýna söngleikinn um Ronju ræningjadóttur í Bæjarleikhúsi sínu undir stjórn Agnesar Wild og tónlistarstjórn Sigrúnar Harðardóttur. Sýningin er afar fjölmenn, upp undir þrjátíu manns taka þátt í henni, og þó eru búningarnir enn fleiri því sömu leikarar leika skógarnornir og grádverga og annar hópur leikur rassálfa og Borkaræningja. Ekki furða þótt [...]

Ævintýri Dísu ljósálfs

2019-09-05T21:53:04+00:0024. október 2010|

Það er erfitt að ímynda sér örlagasögur barna úr nútímanum sem jafnist á við átakanlega hrakfarasögu Dísu litlu ljósálfs sem allir Íslendingar þekkja. Hún villist að heiman og lendir fyrst í vondri vist hjá mennskum hjónum, skógarhöggsmanni og konu hans, síðan í óhugnanlegri barnaþrælkun lengst ofan í jörðinni hjá moldvörpu; þaðan bjarga froskar henni og [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]

Já, skyldi maður ekki hafa nóg?

2020-01-31T15:50:46+00:0024. febrúar 2009|

Þjóðleikhúsið frumsýndi Kardemommubæinn á sunnudaginn, fullu húsi af fallegum börnum til mikillar kátínu. Selma Björnsdóttir leikstýrði og setti að ýmsu leyti sitt mark á sýninguna, til dæmis voru leikarar ungir, ljónið var póstmódern og las blöðin og dansarnir (sem Birna og Guðfinna Björnsdætur sáu um) krakkalega eróbikklegir. Sviðið hans Brians Pilkingtons er litríkt og fallegt og búningarnir [...]