Þú ert hér://Tag: Margrét Vilhjálmsdóttir

„Við erum rétt að byrja“

2019-06-18T17:38:03+00:0027. desember 2012|

Á undanförnum árum og áratugum hafa ótal ritgerðir og bækur verið skrifaðar um hegðun einræðisherra og harðstjóra út frá karakterum eins og Adolf Hitler, Jósep Stalín og Maó. Því væri eðlilegt að samtímaleikskáld okkar gæti samið gott verk um fyrirbærið. En það kemur á óvart að Shakespeare (f. 1564, d. 1616) skuli hafa vitað nákvæmlega [...]

Beisk barátta ills og góðs

2019-08-08T16:52:22+00:004. mars 2012|

Það var mikið hrópað og klappað í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi að lokinni þriggja tíma maraþonsýningu á Vesalingunum. Enda var ástæða til. Leikhúsið hafði tjaldað til mörgum sínum allrabestu söngkröftum, svið Finns Arnars Arnarsonar var óvænt og áhrifamikið, Tónlistin kom ekki úr hátölurum heldur beint upp úr gryfjunni undir styrkri stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar, búningar Maríu [...]

„Tótal teater“

2019-08-23T15:23:52+00:0018. september 2011|

Í gærkvöldi var svo Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur frumsýndur í Kassanum í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fyrsta leikrit þessa dáða skáldsagnahöfundar bar sannarlega engin byrjandamerki; það skal sagt undir eins í upphafi að þetta var einstaklega frumleg, falleg og fyndin sýning. Það var freistandi í hléi og eftir sýningu að ímynda [...]

“Hörmungatímum við hljótum að gera skil”

2019-08-24T15:02:11+00:0027. desember 2010|

Eiginlega er Lér konungur ómögulegt leikrit, rosalega langt og flókið og snýst mest um óyndisleg efni eins og valdabaráttu, heimsku, svik, geðveiki og ofbeldi. Það byrjar á því að gamall kóngur útfærir einstaklega vonda hugmynd sína: að gefa dætrum sínum þremur landsvæði í hlutfalli við ástina sem þær segjast bera til hans. Svo er honum [...]

Er Bella æt?

2020-01-31T15:35:46+00:0028. mars 2009|

Sædýrasafnið eftir Marie Darrieussecq var heimsfrumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi undir stjórn franska leikstjórans Arthurs Nauzyciel og í þýðingu Sjóns. Margt varð til að byggja upp spennu fyrir þessa sýningu. Það var samið sérstaklega fyrir íslenska Þjóðleikhúsið (soldið 2007, að vísu) og sýningin fer héðan – með sínum íslensku leikurum – til Orleans í [...]