Þú ert hér://Tag: Margrét Einarsdóttir

Maður og kona á 21. öldinni

2020-09-22T12:19:11+00:0021. september 2020|

Það er grímuskylda í Þjóðleikhúsinu og mér fannst það talsverð reynsla að sitja heila leiksýningu með grímu fyrir vitunum. En maður gerir hvað sem er, þegjandi og hljóðalaust, ef það stuðlar að því að leikhúsin haldist opin. Vissulega varð mér dálítið þungt um andardráttinn undir sýningunni en kannski var það ekki gríman heldur tilfinningaspennan á [...]

Um tímann – við vitum ei hvernig hann líður

2020-02-10T17:37:30+00:0010. febrúar 2020|

Kvenfélagið Garpur frumsýndi í gærkvöldi á Nýja sviði Borgarleikhússins leikritið Er ég mamma mín? eftir Maríu Reyndal sem einnig leikstýrir. Egill Ingibergsson sá um leikmynd og lýsingu, Úlfur Eldjárn um tónlist og hljóðmynd og Margrét Einarsdóttir hannaði búninga. Bæði leikmynd og búningar eru erfiðari viðfangs en venjulega í þessu verki af því að það gerist [...]

Hetjusaga Sóleyjar Rósar

2019-05-06T16:37:52+00:0023. september 2016|

Ég var búin að lesa mikið hrós um Sóley Rós ræstitækni sem Kvenfélagið Garpur sýnir nú í Tjarnarbíó þegar ég loksins sá hana í gærkvöldi. Þrátt fyrir ítarlegar lýsingar á efni og útliti sýningarinnar í umsögnum um hana tókst henni að koma mér rækilega á óvart. Það er fyrst og fremst leikurunum að þakka og [...]

Vömb, keppur, laki, vinstur

2019-08-13T14:55:45+00:006. nóvember 2011|

Þær eru orðnar nokkrar kynslóðirnar sem hafa hlustað á Lög unga fólksins með Hrekkjusvínunum og sungið sig hásar með. Og ekki verður maður leiður á plötunni hvað sem hún er spiluð oft. Nú hefur hópur einlægra aðdáenda hennar spunnið sögu sem lögin eru fléttuð inn í og sett hana á svið. Stundum falla lögin eðlilega [...]

Svart og hvítt

2020-01-30T14:58:18+00:0031. janúar 2010|

Leiksýningarnar tvær sem ég sá um helgina voru býsna ólíkar. Ekki segi ég kannski að ég hafi farið öfganna á milli en ekki langt frá því. Á föstudagskvöldið sáum við hjónin Tilbrigði við stef eftir Strindberg og Þór Rögnvaldsson í salnum uppi í Iðnó. Í gær lá leiðin á Algjöran Sveppa eftir Gísla Rúnar Jónsson í Íslensku óperunni. Hvort [...]

Heim til mömmu

2020-01-30T16:02:20+00:002. nóvember 2009|

Ég játa að ég fylgist með framhaldsþáttunum Dirty Sexy Money í Sjónvarpi allra landsmanna. Þetta er hárbeitt háð um fólkið sem mörg okkar öfunda, ríkasta fólkið í hinum vestræna heimi, sorgir þess og gleði – aðallega sorgir náttúrlega – vel skrifaðir og ágætlega leiknir, sambærilegir að ýmsu leyti við þá dásamlegu grínþætti Aðþrengdar eiginkonur. Þarna [...]