Þú ert hér://Tag: Lókal

Listamaðurinn býr enn í helli sínum

2019-05-16T15:56:56+00:0018. september 2015|

Kolbeinn Arnbjörnsson skapar flókinn en þó heillegan og trúverðugan karakter í einleiknum Frama eftir Björn Leó Brynjarsson sem frumsýndur var á Lókal og Reykjavík Dance Festival en er nú sýndur í Tjarnarbíó á vegum hópsins TAKATAKA. Björn Leó leikstýrir sjálfur og sér líka um tónlistina í sýningunni en sér til aðstoðar við sviðsetninguna hefur hann [...]

Saga pólitísks flóttamanns

2019-05-16T16:51:59+00:0031. ágúst 2015|

Við skrópuðum á Lókal á laugardag en sáum í staðinn þrjár bráðgóðar nýjar íslenskar heimildarmyndir í Bíó Paradís. En í gær hlýddum við á írönsku stúlkuna Nazanin Askari segja frá lífi sínu, landi sínu og kjörum þjóðar sinnar á Lókal, í sýningu sem hún vann með Mörtu Nordal og undir stjórn hennar. Þetta er í [...]

Lifendur þegja, dauðir syngja

2019-05-16T17:03:40+00:0028. ágúst 2015|

Dagur tvö á Lókal, leikhúsreynslan víkkar út, jafnvel yfir í annan heim. Síðdegis sáum við Krísufund Kriðpleirs á Dansverkstæðinu við Skúlagötu og um kvöldið When I Die sem kemur frá Kaserne í Basel, draugasögu með tónlist eftir Thom Luz. Í báðum tilvikum var sjón sögu ríkari. Ekki höfðum við áður hitt á sýningar Kriðpleirs frekar [...]

Ástin – sterkasta aflið

2019-05-16T17:17:27+00:0027. ágúst 2015|

Lókal-hátíðin er hafin og við drifum okkur á tvær sýningar í gær, báðar hjá Áhugaleikhúsi atvinnumanna í Borgarleikhúsinu. Við höfum af einhverjum undarlegum ástæðum misst af þessum góða hópi fram að þessu þó að hann hafi starfað síðan 2005 og sett upp fjölmargar sýningar. Það er nokkuð sérstætt við hópinn að hann býður öllum á [...]

Segðu mér að ástin sé sönn

2019-05-16T17:15:54+00:0025. ágúst 2015|

Eins og leik- og dansáhugamenn vita standa nú yfir tvær samtengdar hátíðir í borginni, leiklistarhátíðin Lókal og danslistahátíðin Reykjavík Dance Festival. Glöggir lesendur mínir hafa líka tekið eftir því að ég hef ekki reynt að skrifa um neinn dansviðburð þótt þar hafi mátt velja á milli margra athyglisverðra sýninga. Þetta stafar ekki af því að [...]