Þú ert hér://Tag: Landnámssetrið Borgarnesi

Þeim var ég verst

2025-02-09T12:41:23+00:009. febrúar 2025|

Í gærkvöldi var frumsýning á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar sagði Vilborg Davíðsdóttir okkur Laxdæla sögu – eins og má ímynda sér að sögumenn í baðstofum fortíðar hafi sagt hana, hver á sinn hátt. Vilborg hefur unnið með þessa Íslendingasögu lengi og það er ekki bara að hún kunni hana, hún hefur hana algerlega [...]

Salóme segir frá

2023-04-24T09:56:09+00:0016. apríl 2023|

Það var brotið blað í sögu Söguloftsins á Landnámssetrinu í Borgarnesi í gærkvöldi. Þá var í fyrsta sinn flutt þar ný skáldsaga sem hvorki er um sögulegar persónur né byggð á heimildum heldur fjallar um fólk í samtímanum, meira að segja fjölskyldu á Akranesi. Hér steig Júlía Margrét Einarsdóttir á fjalirnar og sagði skáldsögu sína [...]

Refillinn í Bayeux

2021-05-14T11:00:09+00:0014. maí 2021|

Landnámssetrið í Borgarnesi heldur upp á fimmtán ára afmæli og nýja opnun eftir langt „kóf“ með sögustund um óvenjulegt efni. Reynir Tómas Geirsson læknir stóð nýlega að útgáfu á bókinni Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik Olsen sem kona hans, Steinunn Jóna Sveinsdóttir, þýddi og sem segir frá tilurð refilsins fræga sem saumaður var í Kent [...]

Mundi og Bóbó hjá ömmu Gógó í Ameríku

2020-06-11T14:41:37+00:007. júní 2020|

Það er ekkert langt síðan við vorum síðast minnt á fjölskylduna í Gamla húsinu í Thulekampinum, Tómas kaupmann, Karólínu spákonu, Gógó dóttur hennar, öll börnin hennar Gógóar og barnabörn, Þjóðleikhúsið setti upp nýjan söngleik byggðan á Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjunni haustið 2016 eins og við munum. Í gærkvöldi voru kynnin við þetta geðríka [...]

Sýning fyrir allar ömmur

2020-02-09T12:57:50+00:009. febrúar 2020|

Auður Jónsdóttir rithöfundur frumsýndi í gærkvöldi sýninguna Auður og Auður á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar segir hún frá sambandi sínu við ömmu sína, Auði Sveinsdóttur Laxness, og tímabilinu sem hún fjallar um í bókinni Ósjálfrátt frá 2012. Auður byrjar hversdagslega dramatískt. Hún er stödd í eldhúsinu hjá ömmu sinni á Gljúfrasteini, rúmlega tvítug [...]