„Love is all around“
Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]