Þú ert hér://Tag: Kristinn Óli Haraldsson

Leiðin að mennskunni

2026-10-17T14:00:20+00:0017. október 2026|

Það var mögnuð stemning í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningunni á Höggi eftir James Graham, manni fannst á löngum stundum að salurinn andaði ekki. Greinilegt var að hver einasti áhorfandi gat sett sig í spor fólksins á sviðinu og skilið hve óskaplega djúp spor eitt högg getur skilið eftir sig. Aðeins eitt högg – eða [...]

Goðsaga fær nýtt líf

2026-10-16T14:36:37+00:0022. júní 2026|

Það dregur ekki fjöður yfir það, unga fólkið í Afturámóti, að það sé að vinna með gamalkunnugt efni í uppsetningu sinni á söngleiknum Með allt á hreinu í Háskólabíó. Þvert á móti leggja þau höfuðáherslu á það með því að skipa tvö úr hópnum, Gæruna Dýrleifu (Katla Þ. Njálsdóttir) og Stuðmanninn Skafta Sævars (Kristinn Óli [...]

„Lína, það er ég“

2025-09-14T11:34:17+00:0014. september 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær splunkunýja uppsetningu á Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í leikgerð Staffans Götestam, þýðingu Þórarins Eldjárn og leikstjórn Agnesar Wild. Um þessar mundir eru áttatíu ár síðan þessi ástsæla persóna birtist fyrst á prenti i heimalandi höfundar, Svíþjóð, við misjafnar viðtökur fullorðinna en óskoraðan fögnuð barna, og nú er hún sennilega frægasta [...]

Oh, my Cod!

2025-07-05T10:21:32+00:004. júlí 2025|

Það var mikið hrópað og hlegið í sal 1 í Háskólabíó þegar Afturámóti frumsýndi rapp/rokk-óperuna Þorskasögu eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Hafsteinn leikstýrir sjálfur en hefur Kristin Óla Haraldsson með sér sem dramatúrg.  Glitrandi hreisturbúninga hannaði Hulda Kristín Hauksdóttir, tónlistarstjóri er Kolbrún Óskarsdóttir, afar mínimalíska leikmynd hannaði Egle Sipaviciute en kórstjórn sá Hanna Ragnarsson [...]

Ástin og dauðinn á fjöllum

2019-05-20T10:20:57+00:0027. mars 2015|

Ég var bæði búin að kvíða fyrir og hlakka til að sjá Fjalla-Eyvind og Höllu í Þjóðleikhúsinu, rosalega spennt að vita hvernig Stefan Metz færi með þessa gömlu klassík okkar sem hver kynslóð verður að fá sína útgáfu af. Það voru útlendingar sem báru þetta verk fram og hófu það til vegs og virðingar upphaflega, [...]