Þú ert hér://Tag: Kristbjörg Kjeld

Ofurseld

2019-06-18T11:42:36+00:003. mars 2013|

Á sýningunni Karma fyrir fugla í Kassa Þjóðleikhússins er athygli áhorfanda krafist af ofstopa í byrjun verks með afar háu hljóði og svo löngu að smám saman grípur skelfingin mann. Það er líka eins gott að hafa athyglina vakandi því þó að sagan sé í sjálfri sér ekki flókin og skilaboðin beinskeytt þá fer verkið [...]

Dagleiðin langa inn í hrun

2019-06-19T11:35:10+00:0012. október 2012|

Jónsmessunóttin sem nýtt leikrit Hávars Sigurjónssonar tekur heiti sitt af er raunar aldrei nefnd beinlínis í verkinu svo ég tæki eftir á frumsýningunni í kvöld. En á Jónsmessunótt fara alls kyns vættir á kreik, að minnsta kosti hjá Shakespeare, og vel gæti Hávar verið að vísa í það með titlinum. Alltént er enginn hörgull á [...]

Hann á afmæli ‘ann Stanley …

2019-08-08T15:30:12+00:0028. apríl 2012|

Ég veit ekki hvað gagnrýnendurnir sem rökkuðu Afmælisveisluna hans Harolds Pinter niður í London árið 1958 fundu að henni en ég ímynda mér að það hafi verið að hún gefur engin svör við gátum sínum. Verkið hagar sér eins og spennusaga en við fáum ekki að vita hver glæpurinn var eða hver það er sem [...]

Lífið er leiksvið

2019-08-24T13:42:11+00:007. janúar 2012|

Leikverkið Fanný og Alexander eftir sænska kvikmyndaskáldið Ingmar Bergman var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gær undir stjórn Stefáns Baldurssonar sem einnig vann leikgerðina. Fantagóð þýðingin reyndist vera gerð af Þórarni Eldjárn og töfrafullt sviðið gerði Vytautas Narbutas. Þá voru búningarnir ekki síðri, heiðurinn af þeim á Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Þetta er sannkölluð skrautsýning en afar [...]

„Tótal teater“

2019-08-23T15:23:52+00:0018. september 2011|

Í gærkvöldi var svo Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur frumsýndur í Kassanum í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fyrsta leikrit þessa dáða skáldsagnahöfundar bar sannarlega engin byrjandamerki; það skal sagt undir eins í upphafi að þetta var einstaklega frumleg, falleg og fyndin sýning. Það var freistandi í hléi og eftir sýningu að ímynda [...]

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst [...]

Glæpasaga úr Hlíðunum

2020-01-30T11:55:58+00:0028. febrúar 2010|

Það sem Bragi Ólafsson gerir svo snilldarlega í verkum sínum, skáldsögum og leikritum, er að leiða mann inn í aðstæður sem eru raunsæjar og eðlilegar og vinna með þær, á máta sem freistandi er að kalla ofur-raunsæjan, þangað til þær verða óbærilegar. Um leið og viðtakandi hlær geðveikislega fer honum að líða illa; hann fer [...]

Hinn eiflífi maður

2019-04-03T15:10:15+00:002. nóvember 2008|

Nýtt verk Sigurðar Pálssonar, Utan gátta, sem er sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu, hefur fengið virkilega fín viðbrögð gagnrýnenda eins og það á skilið. Þetta er dásamlegt verk, fyndið og furðulegt en sýnir okkur samt ofan í regindjúp mannlegrar reynslu, án þess að rembast nokkurn tíma. Að óreyndu hefði ég ekki ímyndað mér að hægt væri [...]