Þú ert hér://Tag: Kjartan Darri Kristjánsson

„Og hér ertu þá aftur … Kvíðinn sjálfur …“

2019-04-30T14:29:34+00:0019. apríl 2017|

Kvíði er merkilegt fyrirbæri, svo nauðsynlegur manneskjunni en þó svo leiðinlegur, og vel gert hjá leikhópnum SmartíLab að búa til um hann leiksýningu sem sýnir, fræðir og örvar til baráttu. Hún heitir Fyrirlestur um eitthvað fallegt og er sýnd í Tjarnarbíó undir stjórn Söru Martí. Á snjöllu sviði Brynju Björnsdóttur er stór málmgrind að kúluhúsi [...]

Sýning gullna kjólsins

2019-04-30T16:20:26+00:0017. mars 2017|

Það hlýjar manni um hjartarætur að horfa á fullorðna karlmenn leika sér eins og börn, sprella – jafnvel kviknaktir – dansa, tala tungum, klæða sig í kjóla, stympast og stríða. Þetta gera þeir félagarnir Rúnar Guðbrandsson leikstjóri („direttore absoluto“) og Árni Pétur Guðjónsson, hans „actoro primo“ í sýningunni Endastöð – Upphaf sem frumsýnd var í [...]

Pabbi minn er kona

2019-05-03T15:09:46+00:0014. janúar 2017|

Hannes Óli Ágústsson sýnir dirfsku með því að stíga fram og segja sögu sína og föður síns á Litla sviði Borgarleikhússins í sýningunni Hún pabbi. Þetta er einlæg og lágstemmd sýning eins og hæfir því viðkvæma efni sem hún fjallar um. Hannes Óli var um tvítugt þegar hann sá óvart mynd í heimilistölvunni sem var [...]

Ástin er eilíf

2019-05-17T14:08:51+00:0025. apríl 2015|

Ellefu útskriftarnemar af leikarabraut Listaháskóla Íslands frumsýndu í gærkvöldi Að eilífu eftir Árna Ibsen í Smiðjunni undir stjórn Stefáns Jónssonar. Verkið var upphaflega samið fyrir slíkan útskriftarhóp árið 1997 og ég man að sýningin olli mér vonbrigðum af ýmsum ástæðum. Það gerði ekki frumsýningin í gær. Hún var eldfjörug, hugmyndarík í stóru sem smáu og [...]

Tenórinn kemur heim

2019-05-22T10:42:04+00:001. mars 2015|

Iðnó var svo troðið í gærkvöldi að það var orðið háskalega loftlaust í salnum um það leyti þegar Annar tenór – en samt sá sami – söng síðasta tóninn. Þarna tekur Guðmundur Ólafsson aftur upp þráðinn ellefu og hálfu ári eftir að hann frumsýndi fyrra verk sitt um söngvarann, Tenórinn vinsæla. María Sigurðardóttir leikstýrir af [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt [...]