Þú ert hér://Tag: Katrín Gunnarsdóttir

Breytingin er eini fastinn

2025-02-04T16:19:37+00:001. febrúar 2025|

Það mætti halda að Marmarabörn hefðu verið að hugsa um nýliðið ár þegar þau skírðu sýninguna sína Árið án sumars, alla vega eins og það blasti við okkur hér á suðvesturhorninu. En þau voru búin að hugsa þennan titil æði lengi áður en kom að því ári, enda eru þau með í huga sumarið 1816 [...]

Eftir flóðið

2020-01-21T12:02:20+00:0021. janúar 2020|

Eyður / Mynd: Owen Fiene Samkvæmt verki Marmarabarna, Eyðum, sem ég sá á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi, byrjar maðurinn aftur sem safnari eftir Flóðið. Á sviðinu eru fimm mannleg reköld á eyðilegri strönd þegar tjaldið er dregið frá, ekkert er að sjá í umhverfi þeirra nema misjafnlega stórir plastbútar í ýmsum litum. [...]

„Leikur hlæjandi láns“

2019-06-15T15:03:05+00:0027. mars 2013|

Í Tjarnarbíó má nú fylgjast með tveim stúlkum úr Hreyfiþróunarsamsteypunni, Katrínu Gunnarsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, dansa eigið sköpunarverk sem þær kalla Coming Up. Myndin á prógramminu sýnir tvær stelpur rekast saman í háu stökki, þær eru í dæmigerðum fatnaði stelpna á aldrinum 7-11 ára, buxum og peysum, ekkert „fínar“, hvað þá „dansmeyjarlegar“. Þannig eru [...]

Að hverju hlæjum við?

2019-08-08T16:28:46+00:0010. mars 2012|

Ég játa að ég tengdi sjaldan við gleðileiki Shakespeares á sýningu Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar, Úps!, í Tjarnarbíói í gærkvöldi sem Víkingur Kristjánsson stýrir. Jú, vissulega fór Hannes Óli Ágústsson einu sinni í kjól sem gat verið vísun í að á tímum Shakespeares voru kvenhlutverk leikin af körlum, og einu sinni tíndust allir þátttakendur inn á sviðið [...]

Um ótryggt líf valdhafa

2019-08-24T14:47:48+00:008. janúar 2011|

Íslenska  hreyfiþróunarsamsteypan byrjar á endinum í Kandílandi, dansverkinu sem verið er að sýna í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Líklega hafa þau verið að hugsa um málsháttinn „í upphafi skyldi endinn skoða” því strax þá, í fjölbreyttum tilburðum leikara í framkalli, reyndu þau að toppa hvert annað, taka ný afbrigði af þakkarviðbrögðum að láni frá næsta manni [...]