Þú ert hér://Tag: Kartöflugeymslurnar

Meinvill í myrkrunum

2019-05-03T16:08:22+00:0027. nóvember 2016|

Stúdentaleikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er þægilega lágur að þessu sinni. Undir stjórn Vignis Rafns Valþórssonar vinna þau sýningu sem þau kalla því hnyttna nafni Meinvillt upp úr umdeildu leikriti Edwards Bond Saved. Þau stytta verkið mikið og fjarlægja úr því alla fullorðna, unglingarnir eru einir eftir og leika lausum hala. Saved [...]

Ekkert veit á gott

2019-05-08T11:39:13+00:0030. apríl 2016|

Ef það er til eitt íslenskt skáldverk sem ég hefði fullyrt að ekki væri nokkur leið að skopstæla þá er það Svartfugl Gunnars Gunnarssonar. Þetta gera þó Hugleikarar núna í nýju leikverki eftir Ljóta hálfvitann Ármann Guðmundsson, Feigð, sem sýnt er í Kartöflugeymslunum ofan við Elliðaár. Ármann leikstýrir líka. Í Skollakoti býr nirfillinn Greipur bóndi [...]

Hafa allir rétt á skoðunum sínum?

2019-05-08T13:39:17+00:0021. apríl 2016|

Krakkarnir í Stúdentaleikhúsinu rannsaka fordóma í íslensku samfélagi í leiksýningunni Yfir strikið eftir leikstjórann, Ólaf S. K. Þorvaldz, sem er sýnd í Kartöflugeymslunum handan Elliðaánna. Þátttakendur í sýningunni eru ellefu, sex stúlkur og fimm strákar, þau ganga undir sínum eigin nöfnum en taka að sér ýmis hlutverk, tala ýmist frá eigin brjósti eða þvert um [...]

Það geta ekki allir verið Öskubuska

2019-05-10T14:29:01+00:0016. nóvember 2015|

Það má mikið vera ef Tryggvi Gunnarsson, höfundur og leikstjóri sýningarinnar Öskufalls, hefur ekki þefað af útgáfu Philips Pullman á Grimmsævintýrum sem nýlega kom út í þýðingu minni. Að minnsta kosti leggur Pullman áherslu á að við eigum að gera ævintýrin að okkar eigin sögum þegar við endursegjum þau og það gerir Tryggvi svo sannarlega [...]