Þú ert hér://Tag: Jörundur Ragnarsson

Saga konunnar sem söng

2019-08-08T17:52:05+00:0027. janúar 2012|

Ég vissi ekkert um Eldhaf eftir Wajdi Mouawad áður en ég fór á frumsýninguna á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi og það reyndist vera svo áhrifamikið – að vita ekki neitt fyrirfram – að mér er skapi næst að segja ekkert um verkið eða höfund þess í þessum pistli. Láta duga að hvetja alla sem [...]

Kynusli á Nýja sviði

2019-08-13T14:40:27+00:0012. nóvember 2011|

Leikritið Konan áður eftir Roland Schimmelpfennig sem Þjóðleikhúsið sýndi fyrir fjórum árum er mér minnisstætt þótt mörg hafi maður séð stykkin síðan. Bæði var efnið óvenjulegt (ástkona birtist úr fjarlægri fortíð og hermir loforð um eilífa ást upp á mann annarrar konu) og aðförin að því þannig að áhorfandinn þurfti sífellt að púsla saman og [...]

Sleppa ekki héðan í bráð

2020-01-30T11:12:32+00:0011. apríl 2010|

Við göngum inn í glæsilega leikmynd á Nýja sviði Borgarleikhússins þegar við mætum á Dúfurnar, leikrit Davids Gieselmanns sem var frumsýnt í gærkvöldi. Ilmur Stefánsdóttir hefur skapað verkinu smart umgjörð með ferkílómetravís af hvítu gardínuefni, gráum og hvítum bekkjum, hvítum lömpum, hvítum leðursessum og einu glitrarndi gervijólatré innst í vinstra horni. Svo koma leikararnir inn, [...]

Er virkilega best að vera heima?

2020-01-30T16:27:10+00:0028. september 2009|

Karli Marx varð einhvern tíma að orði að stórir atburðir mannkynssögunnar gerðust fyrst sem harmleikir en endurtækju sig svo sem farsi. Írska leikskáldið Enda Walsh fer með þessa kenningu alla leið og svolítið lengra í verkinu Heima er best (The Walworth Farce) sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar. Þar segir [...]

Hið manneskjulegasta

2020-01-30T17:07:32+00:0018. maí 2009|

Mönnum brá svolítið í brún þegar Páll Baldvin gaf sýningunni Húmanímal í Hafnarfjarðarleikhúsinu fimm stjörnur af fimm mögulegum í Fréttablaðinu, vissu ekki alveg hvaðan á þá stóð veðrið af því Páll er venjulega spar á hrósið. Ég sá ekki sýninguna fyrr en í gær, kannski næstsíðustu sýninguna, ef aðdáendum tekst ekki að fá þeim fjölgað, [...]