Þú ert hér://Tag: Jón Gnarr

Að tala – eða ekki tala

2023-10-10T10:58:49+00:005. október 2023|

Einþáttungurinn Verkið eftir Jón Gnarr var frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum í hádeginu í dag. Það hefur ekki gengið alveg nógu vel gegnum tíðina að fá borgarbúa til að koma í hádegisleikhús og mér finnst fallegt af Þjóðleikhúsinu að gefast ekki upp. Haustið 2021 voru sýnd tvö bráðskemmtileg verk í hádeginu í Kjallaranum, Út að borða með [...]

„Allt sem þú gerir breytist í reynslu“

2021-05-19T11:46:25+00:0019. maí 2021|

Ferðalag um sjálfsævisöguleg skrif Jóns Gnarr Eftir Gunnþórunni Guðmundsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2016 ‚Reynslusaga‘ er nokkuð gott íslenskt orð sem er full ástæða til að dusta rykið af og jafnvel hrista svolítið upp í. Vissulega hefur það ekki mjög bókmenntalegan blæ yfir sér, jafnvel mætti segja að það væri notað sem [...]

Hleruð samtöl

2019-03-18T11:31:39+00:0017. mars 2019|

Súpermarkaðsstúdían Súper – þar sem kjöt snýst um fólk eftir Jón Gnarr var frumsýnd í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Benedikts Erlingssonar. Kuldalega, grábláa kælivörudeildina með plast-einangrunarveggjunum í kring gerði Gretar Reynisson, og snjöll lýsing Jóhanns Friðriks Ágústssonar gat látið fólkið hverfa inn í veggina þegar það gekk út úr deildinni. Filippía I. Elísdóttir [...]

Slær Slá í gegn í gegn?

2019-05-27T11:23:05+00:0025. febrúar 2018|

Lögin eru auðvitað fín, eyrnaormar sem við höfum sungið hástöfum í rúma þrjá áratugi og svo önnur minna þekkt inn á milli. Textarnir bráðskemmtilegir. Grunnhugmyndin að söngleiknum Slá í gegn eftir Guðjón Davíð Karlsson sem Þjóðleikhúsið frumsýndi á stóra sviðinu í gærkvöldi undir stjórn þess sama Góa er líka allt í lagi. Vantar þá nokkuð? [...]

Fjör á Hótel Volkswagen

2019-08-08T15:43:39+00:0025. mars 2012|

Gáta (eða brandari): Hvað komast margir fílar inn í Volkswagen bjöllu? Svar: Fimm. Þrír afturí og tveir frammí. Á Hótel Volkswagen í Borgarleikhúsinu eru líka fimm fílar – ég meina gestir – í skjóli hótelstjórans, Svenna (Hallgrímur Ólafsson). Einn gamall nasisti, Ludvig Rosencrantz (Þorsteinn Gunnarsson), hjónin Adrian Higgins (Halldór Gylfason) og Paul Jenkins (Jörundur Ragnarsson) [...]