Þú ert hér://Tag: Iðnó

Fæst hvorki skipt né skilað

2020-02-24T15:32:01+00:0010. febrúar 2020|

„Komið eins og þið eruð. Með barn á brjósti eða ekki. Svefnvana eða alsælar eftir heila nótt af ótrufluðum svefni … Endilega gefðu barninu þínu brjóst á meðan og við eigum fullt af auka bleyjum.“ Hvenær höfum við séð slíka auglýsingu fyrir leiksýningu? En svona kynna fjórar leikkonur sýningu sína Mæður sem var frumsýnd í [...]

Nornaseiður í Iðnó

2019-03-12T14:58:41+00:009. mars 2019|

Það var sérkennilegt að koma inn í Iðnó í gærkvöldi: þar gengu um sali konur í skrautlegum samkvæmiskjólum, gjarnan vel flegnum og pallíettuskreyttum, og létu vel að gestum, en maddama Karítas (Nanna Gunnarsdóttir) bauð gesti velkomna og bauð þeim að ganga afsíðis með stúlkunum gegn vægu gjaldi vildu þeir njóta einkaþjónustu. Í salnum voru daðurslega [...]

Er einhver venjulegur?

2019-03-12T16:02:53+00:0020. febrúar 2019|

Nýr leikhópur, Venjulegt íslenskt fólk, frumsýndi sína fyrstu sýningu, Takk fyrir mig, í Iðnó á mánudagskvöldið. Ég sá sýninguna í gær en næsta sýning er ekki fyrr en 27. febrúar. Leikararnir eru allir að ljúka leiklistarnámi í Danmörku en fengu að taka praktíkina hér heima, enda er líklegt að framtíð þeirra sé hér á landi. [...]

Ævintýrin gerast enn

2019-03-12T16:09:37+00:005. febrúar 2019|

Þið eruð líklega mörg búin af missa af ævintýraóperunum hennar Þórunnar Guðmundsdóttur i Iðnó, því miður, allar sýningarnar voru um helgina. Það er talsverður missir því þetta voru afar skemmtileg, áheyrileg og ásjáleg verk. Það voru nemendur í Menntaskólanum í tónlist og leikfélagið Hugleikur sem stóðu að sýningunni. Þetta voru tvær ævintýraóperur. Sú fyrri, „Ár [...]

„Rómantíkin er stækkun á lífinu“

2019-05-03T12:15:41+00:0024. febrúar 2017|

Mér finnst sennilegt að Edda Björg Eyjólfsdóttir hjá Edda Productions hafi ákveðið að setja upp verkið um Þórberg Þórðarson, sem frumsýnt var í Tjarnarbíó í gærkvöldi, vegna þess að hún vilji halda nafni þessa merka höfundar á lofti. Finnist jafnvel ekki nóg að gert til þess. Það er prýðileg ástæða, jafnvel göfug. Aldrei er of [...]

Annað gott fólk

2019-05-03T14:28:17+00:006. febrúar 2017|

Það er dálítið skondið í ljósi nýlegrar umræðu um sýninguna sem nú gengur í Kassa Þjóðleikhússins að hlusta á unga fólkið í leikritinu Andaðu í Iðnó velta fyrir sér aftur og aftur hvort þau séu ekki gott fólk. Þau velta þessu fyrir sér af því þau – eða sérstaklega stúlkan (Hera Hilmarsdóttir) – finna til [...]

„Þar skall helvítis hurð nærri hælum“

2019-05-20T16:31:19+00:0016. mars 2015|

Það fór kannski ekki mjög hátt en í gærkvöldi var frumsýnd í Iðnó ný íslensk ópera, Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Hún er löngu þekkt meðal leikhúsáhugamanna – að minnsta kosti Hugleikhúsáhugamanna – fyrir leikrit sín, óperur og söngleiki, síðasta verk hennar af því tagi var Stund milli stríða sem var valin besta áhugaleikhússýningin í [...]

Tenórinn kemur heim

2019-05-22T10:42:04+00:001. mars 2015|

Iðnó var svo troðið í gærkvöldi að það var orðið háskalega loftlaust í salnum um það leyti þegar Annar tenór – en samt sá sami – söng síðasta tóninn. Þarna tekur Guðmundur Ólafsson aftur upp þráðinn ellefu og hálfu ári eftir að hann frumsýndi fyrra verk sitt um söngvarann, Tenórinn vinsæla. María Sigurðardóttir leikstýrir af [...]

Husk at leve – mens du gør det

2019-09-05T22:32:32+00:0013. september 2010|

Danir eiga gífurlegan fjársjóð í sönglögum af öllu tagi, fyndnum og harmþrungnum, léttum og einföldum og þungum og flóknum, barnalögum og lögum um ellina, ástarljóðum og – ekki síst – söngljóðum um lífið og tilveruna. Hversdagsvitur ljóð sem gott er að grípa til þegar þörf er á andlegum styrk í dagsins önn. En Charlotte Bøving [...]

Þetta má ekki hafa eftir þér, Dorrit

2020-01-29T12:20:35+00:0013. apríl 2010|

Mánudagsleikhúsið fór af stað með hvelli í Iðnó í gærkvöldi. Þá var fyrsta og eina sýningin á leikritinu Nei, Dorrit! sem Þórarinn Leifsson byggði á frægu viðtali Joshua Hammer við íslensku forsetahjónin frá því snemma árs 2009; Auður Jónsdóttir stýrði. Nú er viðtal eiginlega leikrit og þetta viðtal er nógu djúsí til að standa lítt [...]