Þú ert hér://Tag: Hjalti Rúnar Jónsson

Íbúðabrask á Akureyri

2026-10-16T14:07:58+00:0011. október 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á föstudagskvöldið í Samkomuhúsinu Fasteignamartröðina eftir litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité í leikstjórn Adolfs Smára Unnarssonar sem einnig þýðir verkið og staðfærir. Brynja Björnsdóttir sá um leikmynd og búninga og Fjölnir Gíslason um ljósahönnun og myndbandagerð. Jóhannes Damian R. Patreksson samdi tónlistina en Gunnar Sigurbjörnsson sá um hljóðhönnun. Harpa Birgisdóttir ber ábyrgð á [...]

Allt er alltaf alls staðar í allra besta lagi?

2026-02-28T14:10:15+00:0027. febrúar 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi í Samkomuhúsinu í höfuðstað Norðurlands leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar af Birtíngi Voltaires undir leikstjórn sama. Birtíng þýddi á sínum tíma Halldór Laxness (1945). Snjalla og marghliða leikmynd hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir; Björg Marta Gunnarsdóttir skapaði endalausa gnótt bráðskemmtilegra búninga en Petr Hloušek teiknaði lifandi myndir á baktjaldið þegar mikið lá [...]

Var lífið betra þá?

2025-10-13T12:25:16+00:0013. október 2025|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi á laugardagskvöldið í Samkomuhúsinu gamanleikinn Elskan, er ég heima? (Home, I‘m Darling) eftir enska leikskáldið Lauru Wade í ágætri þýðingu Vilhjálms B. Bragasonar. Leikstjóri er Ilmur Kristjánsdóttir. Börkur Jónsson hannar leikmyndina en Björg María Gunnarsdóttir búninga, Sigurjón Kjartansson sér um tónlist en Gunnar Sigurbjörnsson um hljóð og Lárus Heiðar Sveinsson um lýsingu. [...]

Tveggja leiksýninga kvöld

2024-06-26T21:14:41+00:0026. júní 2024|

Dúndurfréttir: Nýtt sviðslistahús hefur verið stofnsett í Reykjavík, Afturámóti. Það hefur aðsetur í Háskólabíó og þar í sal 2 sá ég tvö stutt leikverk í gærkvöldi. Hið fyrra, Hansel og Gretel eftir Melkorku Gunborgu Briansdóttur hafði ég séð áður á Ungleik í Tjarnarbíó í fyrra, hið síðara var Svar við bréfi Petru eftir Gígju Hilmarsdóttur [...]

Mannabörn, tröllabörn og ofurbörn

2022-03-23T12:58:00+00:0020. mars 2022|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í kjallara Kassans barnaleikritið Umskipting eftir Sigrúnu Eldjárn undir stjórn Söru Martí Guðmundsdóttur. Þar hafði Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður snúið öllu á langveginn þannig að sviðið varð ógnarlangur klettaveggur með fosssprænum úr ljósi og hentugum mosagrónum syllum sem mátti leggjast í og klifra eftir. Þetta var bæði fallegt og bauð upp [...]

Vertu sæl, Berlín

2019-05-08T10:39:04+00:0025. nóvember 2018|

Hjá Leikfélagi Akureyrar er nú sýndur söngleikurinn Kabarett eftir ótal manns – Joe Masteroff (leiktexti), John Kander (tónlist) og Fred Ebb (söngtextar), sem byggðu á skáldsögu Christophers Isherwood (Goodbye to Berlin) og leikriti Johns van Druten upp úr henni (I Am a Camera) – og þau sýna ekki í Hofi eins og virtist liggja beint [...]

Veruleikaflótti í raunveruleikaþætti

2019-05-08T11:13:39+00:001. maí 2016|

Það er stöðugur höfuðverkur umsjónarmanna með leiklistarnemum að finna verk sem passar fyrir hópinn, helst þannig að öll fái þau gott efni til að glíma við. Í ár hélt leikarabraut LHÍ leikritasamkeppni, eins og hefur verið gert stöku sinnum áður, og verkið sem sigraði, Við deyjum á Mars eftir Jónas Reyni Gunnarsson, er nú sýnt [...]

Kastið hömlunum – komið með til Transilvaníu

2019-09-05T22:57:21+00:0012. september 2010|

Hof, nýja menningarhúsið á Akureyri, er fallega staðsett, skemmtilega hugsað og hannað og þangað er gott að koma. Og fyrsta frumsýning Leikfélags Akureyrar í húsinu, á Rocky Horror Show, tæplega fertugum söngleik eftir Richard O’Brien í fyrrakvöld, tókst svo vel að ég gæti best trúað að blessun væri yfir húsinu. Vissulega eru gallar á húsakynnunum. [...]