Þú ert hér://Tag: Gunnlaugur Bjarnason

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur [...]

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Ég á gull að gjalda – en gráta ekki má

2022-09-30T14:24:07+00:002. september 2022|

Ævintýraóperan Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur – bæði texti og tónlist – var frumsýnd í Gamla bíói í gærkvöldi. Ég hef áður séð nokkrar gamanóperur Þórunnar, byggðar á þjóðararfinum, og þær hafa allar verið eftirminnilega skemmtilegar, textinn vel ortur og fyndinn og tónlistin vel samin og aðlaðandi í klassískum og þjóðlegum stíl án þess kannski að [...]

„Þar skall helvítis hurð nærri hælum“

2019-05-20T16:31:19+00:0016. mars 2015|

Það fór kannski ekki mjög hátt en í gærkvöldi var frumsýnd í Iðnó ný íslensk ópera, Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Hún er löngu þekkt meðal leikhúsáhugamanna – að minnsta kosti Hugleikhúsáhugamanna – fyrir leikrit sín, óperur og söngleiki, síðasta verk hennar af því tagi var Stund milli stríða sem var valin besta áhugaleikhússýningin í [...]

List í staðinn fyrir fisk og plast

2019-08-24T13:17:37+00:0020. mars 2011|

Um helgina sá ég tvær leiksýningar sem áttu það sameiginlegt að vera leiknar í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði sem listin hefur nú lagt undir sig. Í niðurlögðu frystihúsi á Stokkseyri, Hólmaröst, sýndi stór hópur nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands Alla leið heim, litríka og stórskemmtilega útfærslu á þeirri frægu bíómynd O Brother, Where Art Thou? (sem fyrir sitt [...]